
Snjóflóð hafa áður fallið á Skarðsströnd. Myndin er ú safni, en ekki hefur borist mynd af flóðinu sem féll í gær.
Snjóflóð féllu á Skarðsströnd
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þrjú snjóflóð hafa fallið á veginn um Skarðsströnd í Dölum á vikutíma. Tvö snjóflóð féllu þar í byrjun síðustu viku og í gærkveldi féll það þriðja og er vegurinn lokaður, en unnið er að því að opna hann að nýju. Vegurinn er einnig lokaður um Klofningsskarð þar sem tveggja metra skafl er yfir veginum og er Skarðsströndin því einangruð í augnablikinu. Að sögn Sæmundar Kristjánssonar hjá Vegagerðinni í Dölum er bæði veghefill og snjóblásari að vinna að opnun vegarins að nýju en hann hafði ekki upplýsingar að svo stöddu um hversu stórt þetta flóð er.\r\n\r\n„Stærsta flóðið á þessu svæði núna í vetur var á um 80 metra lengdarkafla á veginum og 1,5 metrar á þykkt yfir vegi. En ég hef ekki upplýsingar um hversu stórt flóðið í gær var. Það var vitlaust veður þarna í gær og leiðindaveður í morgun en við fórum af stað um leið og óhætt var fyrir okkar starfsfólk að komast þangað og ég hef frekari upplýsingar þegar búið verður að moka veginn,“ segir Sæmundur. Þá segir hann alls ekki ólíklegt að fleiri flóð muni falla á svæðinu á næstu vikum. „Þetta er snjóflóðasvæði og það eru miklar hengjur þarna sem eiga eftir að koma niður,“ segir hann. Aðspurður segist hann ekki vita til þess að fólk hafi farið sér að voða í flóðinu í gær. „Íbúar á þessu svæði vita allir af hættunni og haga held ég ferðum sínum eftir því. Það er líka jákvætt að það er ekki skólaakstur á þessum slóðum,“ segir hann.",
"innerBlocks": []
}