Björgunarsveitarmenn í Borgarfirði. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

Fjölmennt útkall vegna neyðarsendis á Vatnajökli

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fimmtíu björgunarsveitarmenn frá níu björgunarsveitum af sunnanverðu landinu eru nú á leið upp á Vatnajökul vegna neyðarkalls sem barst frá neyðarsendi á fjórða tímanum í nótt. Björgunarsveitir allt frá höfðuborgarsvæðinu til Austurlands voru boðaðar í ljósi þess hvaðan neyðarboðin koma. Útkallið barst á fjórða tímanum í nótt. „Aðstæður á svæðinu eru erfiðar, mikil veðurhæð og mjög takmarkað skyggni á köflum. Enn er unnið að því að komast á staðinn þaðan sem neyðarsendingin kom en vonir standa til að það takist á næstu klukkutímum. Fjöldinn allur af sérhæfðum tækjum og sjálfboðaliðum sækir því á jökulinn úr öllum áttum á vélsleðum, breyttum jeppum og snjóbílum. Svæðisstjórnir á svæði 1-13-15 skipuleggja aðgerðir björgunarsveita,“ segir í tilkynningu frá Landsbjörgu.",
  "innerBlocks": []
}
Fjölmennt útkall vegna neyðarsendis á Vatnajökli - Skessuhorn