
Bára Daðadóttir.
Bára býður sig ekki fram aftur
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Bára Daðadóttir, sem hefur verið bæjarfulltrúi fyrir Samfylkinguna á Akranesi síðustu fjögur ár, tilkynnti það á facebook síðu sinni á mánudagskvöldið að hún hafi ákveðið að bjóða sig ekki aftur fram til starfa í bæjarstjórn næsta kjörtímabil. „Undanfarin fjögur ár hef ég setið í bæjarstjórn Akraness og verið formaður skóla- og frístundaráðs. Að hafa fengið tækifæri til þessara starfa eru forréttindi að mínu mati og ég er mjög þakklát fyrir það. Ég tel okkur hafa verið að vinna vel og að góðum verkefnum fyrir bæinn okkar. Bæjarstjórnarstarfið er að mestu unnið síðdegis og á kvöldin. Tíma sem hentar alls ekki fjölskyldufólki en á kjörtímabilinu minnkaði ég líka starfshlutfallið mitt (svona þegar ég var ekki í fæðingarorlofi) til þess að ná að halda öllum boltunum mínum á lofti. Ég hef því ákveðið að bjóða mig ekki aftur fram til starfa í bæjarstjórn þetta kjörtímabil og njóta seinnipartanna og kvöldanna með fjölskyldunni og minnka púsluspilið,“ segir Bára meðal annars í færslu sinni.",
"innerBlocks": []
}