Yfirlýsing frá Félagi fréttamanna um lögreglurannsókn
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Félag fréttamanna, sem er fag- og stéttarfélag fréttamanna á fréttastofu RUV, lýsir yfir áhyggjum og undrun yfir því að lögreglan á Norðurlandi skuli kalla blaða- og fréttamenn til yfirheyrslu og veita þeim stöðu sakborninga vegna starfa þeirra við blaðamennsku.\r\n\r\nYfirlýsingin er svohljóðandi: „Málavextir eru enn óljósir, en lögreglan hefur tilkynnt að minnsta kosti fjórum blaðamönnum, þeim Þóru Arnórsdóttur ritstjóra Kveiks á Ríkisútvarpinu, Aðalsteini Kjartanssyni blaðamanni á Stundinni, Arnari Þór Ingólfssyni blaðamanni Kjarnans og Þórði Snæ Júlíussyni ritstjóra Kjarnans, að þau séu grunuð um brot gegn friðhelgi einkalífsins, vegna þess að þau hafi skrifað fréttir unnar upp úr gögnum sem sýndu samskipti fólks tengdu Samherja, sem sjálft kallaði sig skæruliðadeild.\r\n\r\nDómar Hæstaréttar og Mannréttindadómstóls Evrópu hafa á undanförnum árum staðfest rétt íslenskra blaðamanna og nauðsyn þess að þeir vinni fréttir úr gögnum sem þeim berast, eigi þau erindi við almannahagsmuni. Þá ber blaðamönnum ótvíræð lagaleg skylda til að vernda heimildarmenn sína, hvort sem þeir hafa veitt upplýsingar með lögmætum eða ólögmætum hætti.\r\n\r\nBlaða- og fréttamenn víða um heim búa við síauknar ógnanir og ofsóknir, bæði af völdum stjórnvalda, skipulagðra glæpasamtaka og stórfyrirtækja. Tveir blaðamenn hlutu á síðasta ári friðarverðlaun Nóbels, fyrir baráttu sína fyrir fjölmiðlafrelsi í löndum sínum. Í rökstuðningi dómnefndarinnar kom fram, að frelsi fjölmiðla til að miðla staðreyndum og réttum upplýsingum væri forsenda lýðræðis og friðar í ríkjum heims. Ísland hefur á undanförnum árum fallið niður lista samtakanna Reporters Without Borders vegna bágrar stöðu fjölmiðla hér, nú síðast niður í 16. sæti, meðal annars vegna þess að Samherji „skipulagði herferð árið 2020 til að varpa rýrð á blaðamenn sem fjallað höfðu um fréttamálið (um athæfi fyrirtækisins í Namibíu)“.\r\n\r\nNú hefur lögreglan á Norðurlandi boðað blaða- og fréttamenn til yfirheyrslu fyrir að fjalla um þessa sömu herferð. Félag fréttamanna lýsir yfir stuðningi við þessa blaða- og fréttamenn, og lýsir áhyggjum og undrun yfir því að þeir skuli hafa réttarstöðu grunaðra fyrir það eitt að sinna störfum sínum.“",
"innerBlocks": []
}
Yfirlýsing frá Félagi fréttamanna um lögreglurannsókn - Skessuhorn