Á sjöunda tímanum á mánudagskvöldið sótti þyrlan TF-GNÁ alvarlega veikan einstakling á Akranes þar sem ófært var um Kjalarnes. Lenti þyrlan á Þyrlupallinum við Jaðarsbakka. Hér er hún að taka á loft að nýju til flugs rakleiðis til Reykjavíkur. Ljósm. mm.

Annasamur dagur í sjúkraflutningum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Miklar annir voru í sjúkraflutningum á Vesturlandi á mánudaginn og átti veður og færð eftir að hafa veruleg áhrif á störf sjúkraflutningafólks. Þórður Guðnason, yfirmaður sjúkraflutninga hjá HVE, segir í samtali við Skessuhorn að verkefnin hafi byrjað snemma dags, en klukkan fjögur um nóttina þurfti að sækja sjúkling í Rif í „stjörnuvitlausu veðri,“ eins og Þórður orðaði það. Síðar um daginn var sjúkrabíll á leið í útkall í Svínadal í Hvalfjarðarsveit, en þar þurfti auk þess að ræsa út snjóruðningstæki til að ryðja veginn. Í kjölfarið kom svo útkall á annan stað í Svínadal. Ekki vildi betur til en svo að sá bíll fauk út af veginum við Akrafjall á leið sinni í Svínadal. Engan sakaði og minniháttar skemmdir urðu á sjúkrabílnum, að sögn Þórðar. Í kjölfar beggja þessara útkalla kom svo forgangsútkall innanbæjar á Akranesi.\r\n\r\nSíðdegis var búið að loka veginum um Kjalarnes vegna hvassviðris. Þá þurfti að kalla til þyrlu vegna alvarlegra veikinda. Um sexleytið um kvöldið lenti TF-GNÁ á þyrlupallinum á Akranesi og flutti sjúklinginn til Reykjavíkur.\r\n\r\nEn annasömum degi var ekki lokið. Vegna hvassviðris seint um kvöldið þurftu sjúkraflutningamenn að kalla út aðstoð Björgunarfélags Akraness. Ljóst var að ekki var hægt að fara á sjúkrabíl fyrir Hafnarfjall þegar flytja þurfti sjúkling frá Stykkishólmi á Akranes. Brynvarinn óveðursbíll björgunarfélagsins, „Talibaninn,“ var því ræstur og sendur í Borgarnes til móts við sjúkrabílinn og flutti sjúklinginn á Akranes. Í leiðinni var farið með Covid sýni áleiðis til greiningar.\r\n\r\n„Þetta var mjög annasamur dagur hjá okkur í öllu tilliti, burtséð frá því að veðrið setti nokkrum sinnum verulegt strik í reikninginn,“ segir Þórður.",
  "innerBlocks": []
}
Annasamur dagur í sjúkraflutningum - Skessuhorn