Fréttir

true

Verulegir annmarkar voru á vinnulagi og eftirliti við stækkun skóla

Saminn hefur verið verkferill til að slíkt endurtaki sig ekki í framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins Byggðarráð Borgarbyggðar tók í morgun til umfjöllunar skýrslu vegna úttektar á framkvæmdum við stækkun og endurbætur á Grunnskólanum í Borgarnesi, sem fram fór á árunum 2014-2020. Í skýrslunni kemur fram að verulegir ágallar hafi verið á vinnulagi og eftirliti með…Lesa meira

true

Flugvélar saknað með fjóra innanborðs

Hafin er umfangmikil leit að lítilli flugvél sem fór frá Reykjavíkurflugvelli á ellefta tímanum í morgun. Síðasta þekkta staðsetning vélarinnar var yfir Heiðmörk. Þrír farþegar auk flugmanns eru í vélinni. Björgunarsveitir á öllu sunnan- og suðvestanverðu landinu eru að hefja leit og þá er þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi. Meðal annars er verið að leita á…Lesa meira

true

Segir bann við handfæraveiðum mannréttindabrot

Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, færði í gær í tal úr ræðustól Alþingis frjálsar handfæraveiðar. „Bann við frjálsum handfæraveiðum er mannréttindabrot, það sýnir álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna sem kom fram árið 2007. Í dag byggist núverandi strandveiðikerfi á því og það er bara allsendis ófullnægjandi. Í dag er ekki skilið á milli stórtækra…Lesa meira

true

Arion banki ákveður að loka útibúi sínu í Búðardal

Viðskiptavinum Arion banka í Búðardal hefur borist tölvupóstur frá bankanum þess efnis að tilkynnt er um lokun bankaútibúsins í Búðardal. „Nú er komið að útibúinu okkar í Búðardal en það mun sameinast útibúinu okkar í Borgarnesi. Afgreiðslan í Búðardal mun í framhaldinu loka. Breytingin mun taka gildi 31. mars nk. Starfsfólk útibúsins verður áfram hluti…Lesa meira

true

Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA

Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA verður haldinn á Jaðarsbökkum fimmtudaginn 17. febrúar næstkomandi klukkan 20. Samkvæmt tilkynningu verður dagskrá fundarins samkvæmt 8. grein laga félagsins sem finna má á heimsíðunni kfia.is. Tillögur um lagabreytingar skulu berast skrifstofu félagsins eigi síðar en 10. febrúar nk.Lesa meira

true

ARR genið fannst ekki í þessari umferð

Eftir að hin svokallaða ARR arfgerð, sem er verndandi gegn riðuveiki, fannst í kindum frá Þernunesi við Reyðarfjörð vaknaði von um að hana væri einnig að finna á Kambi í Reykhólasveit því féð sem greindist á Reyðarfirði átti meðal annars ættir sínar að rekja til Kambs. Kambur er sölubú fyrir fé, selur gripi á fæti…Lesa meira

true

Dósamóttakan opnuð að nýju

Endurvinnslumóttaka Fjöliðjunnar að Smiðjuvöllum 9 á Akranesi hefur verið opnuð að nýju eftir tímabundna lokun vegna Covid-19. Opnunartími er alla virka daga frá klukkan 9 til 11:45 og frá klukkan 13 til 15:30.Lesa meira

true

„Kýs frekar það sem er gott fyrir andlegu heilsuna“

Bjarki Aron Laxdal Sigurðsson er að vinna í leikskólanum Akraseli við Ketilsflöt á Akranesi. Bjarki var áður að vinna í Norðuráli á Grundartanga og fannst það frekar glatað. Hann ákvað því að breyta um starfsvettvang og segir að á Akraseli hafi hann algjörlega fundið sig en hann hefur unnið í skólanum í fjögur og hálft…Lesa meira

true

Margt skemmtilegt við það að vinna á leikskóla

Arnar Már Kárason er starfsmaður á Garðaseli á Akranesi og er að vinna á elstu deildinni, Vík, þar sem börn eru á aldrinum fjögurra til sex ára. Hann byrjaði að vinna í leikskólanum Akraseli þegar hann var í áttunda bekk vegna frjókornaofnæmis og fór því ekki í sumarvinnuna í vinnuskólanum heldur í leikskólann. Arnar Már…Lesa meira

true

Íbúar í Dölum hafa fengið nóg af lélegu farsímasambandi

Dagana 24. til 28. janúar síðastliðna safnaði Jóhanna María Sigmundsdóttir, íbúi og verkefnastjóri í Dalabyggð, saman upplýsingum um fjarskiptasamband meðal íbúa í sveitarfélaginu, þ.e. GSM- og Tetra samband og sambandsleysi í héraðinu. Þetta var gert á samfélagsmiðlum og var svörun gríðarmikil. Niðurstöður eru kort og pistill sem Jóhanna birti í kjölfarið: „Á meðfylgjandi mynd má…Lesa meira