Fréttir

true

Alnafnar fengu afhenta nýja Kia rafbíla

Svo skemmtilega vildi til í dag að tveir menn á Akranesi, sem bera sama nafn, fengu afhenta eins nýja bíla á bílasölunni Bílás. Guðmundur Valdimarsson fékk nýjan Kia EV6 Luxury rafbíl svartan að lit en nafni hans fékk hvítan. Þótt báðir séu þeir nafnarnir komnir á lífeyrisaldur er annar tæpum tveimur áratugum eldri. Það fór…Lesa meira

true

Suðaustan ofsaveður með snjókomu aðfararnótt mánudags

Gefin hefur verið út gul viðvörun um allt land fyrir aðfararnótt mánudagsins 7. febrúar. Þá verður suðaustan 23-30 m/s á Suður- og Vesturlandi, en gengur í suðaustan 18-25 á Norður- og Austurlandi. Snjókoma verður víða um land, en slydda eða rigning nærri sjávarmáli sunnanlands þegar kemur fram á morguninn. Hríðarveður og ófærð mun líklega raska…Lesa meira

true

Aukið fjármagn til markaðssetningar ferðaþjónustunnar

Stjórnvöld og Íslandsstofa hafa undirritað samning um framhald verkefnisins „Ísland saman í sókn“ sem er markaðsverkefni fyrir íslenska ferðaþjónustu. Verkefnið er hluti af viðspyrnu stjórnvalda vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Með samningnum eru verkefninu tryggðar 550 milljónir króna í viðbótarfjármagn frá ríkinu en peningurinn verður nýttur til að framlengja markaðsverkefnið í ár. „Ísland saman í sókn fór…Lesa meira

true

Snjókomu og byl spáð í fyrramálið

Suðvestan- og vestanlands er spáð nokkuð hvössum vindi í fyrramálið. Skafrenningur og staðbundnir hríðarbyljir verða með slæmu skyggni, einna helst á Suðurnesjum og austur fyrir fjall frá klukkan 6 til 10 í fyrramálið en lagast mikið um hádegi. Síðdegis á morgun versnar með hríð og fjúki á Vestfjörðum og annesjum norðanlands.Lesa meira

true

Nýr stigabíll á leiðinni til slökkviliðsins

Á fundi Skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar 31. janúar síðastliðinn lagði ráðið það til að samið yrði við lægstbjóðanda um kaup á stigabíl fyrir Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Tvö tilboð bárust í bíl en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 95 milljónir króna. Ólafur Gíslason & Co. hf. – Eldvarnarmiðstöðin var með tilboð upp á tæplega 92 milljónir…Lesa meira

true

Bjóða út að nýju uppsteypu á köldum potti

Á fundi Skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar 31. janúar var lagt til að verk vegna útboðs á uppsteypu á köldum potti við sundlaugina á Jaðarsbökkum yrði boðið út að nýju. Forsaga málsins er sú að fyrirtækið GS Import bauð í verkefnið þegar það var boðið út árið 2020. Tilboð GS Import var rétt rúmlega 8,7 milljónir…Lesa meira

true

Skallagrímur fékk skell gegn Álftanesi

Álftanes og Skallagrímur mættust í gærkvöldi í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Forsetahöllinni syðra. Jafnt var á flestum tölum í fyrsta leikhluta, Álftanes náði þó sjö stiga forystu þegar tæpar tvær mínútur voru eftir en Skallagrímur náði að minnka muninn í þrjú stig, staðan 20:17. Svipuð staða var þegar komið…Lesa meira

true

Viðamestu leitaraðgerð síðari ára fram haldið í dag

Afar fjölmennri og umfangsmikilli leit að Cessna flugvél með fjórum innanborðs, sem fór frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 10:30 í gærmorgun, verður fram haldið í dag. Um borð í vélinni er íslenskur flugmaður og þrír erlendir farþegar. Leitin að vélinni skilaði ekki árangri í gær, en leitað var fram á nóttina. Um sjö hundruð manns tóku þátt…Lesa meira

true

Borgarbraut 14 fær nýtt hlutverk

Borgarbyggð hefur nú gengið frá kaupsamningi um húseignina Borgarbraut 14 í Borgarnesi. Húsið, sem er 1.053 fermetrar að stærð frá árinu 1960, var upphaflega byggt fyrir starfsemi Sparisjóðs Mýrasýslu en hefur síðustu árin verið Ráðhús sveitarfélagsins. Kaupandi þess er Steðji fjárfestingar ehf. og er kaupverðið 60 milljónir króna. Áform Steðja fjárfestinga ehf eru að innrétta…Lesa meira

true

Vinnumarkaðurinn samanstendur af 200.500 manns

Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir fjórða ársfjórðung nýliðins árs sýna að staða vinnuafls á íslenskum vinnumarkaði hefur batnað nokkuð frá árinu áður. Það má til dæmis sjá á því að hlutfall starfandi hefur hækkað og atvinnuleysi minnkað en um leið sést enn töluverð fjarvera frá vinnu. Hlutfall mannfjölda 16 til 74 ára á vinnumarkaði,…Lesa meira