Atvinnuþátttaka fólks á aldrinum 16-74 ára er nú 78,6%. Myndin er frá húsbyggingu í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni/sá.

Vinnumarkaðurinn samanstendur af 200.500 manns

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir fjórða ársfjórðung nýliðins árs sýna að staða vinnuafls á íslenskum vinnumarkaði hefur batnað nokkuð frá árinu áður. Það má til dæmis sjá á því að hlutfall starfandi hefur hækkað og atvinnuleysi minnkað en um leið sést enn töluverð fjarvera frá vinnu.\r\n\r\nHlutfall mannfjölda 16 til 74 ára á vinnumarkaði, eða atvinnuþátttaka, mældist 78,6% á fjórða ársfjórðungi 2021 sem er aukning um 2,5 prósentustig frá sama ársfjórðungi 2020. Fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi 2021 var 200.500 manns og var hlutfall starfandi af mannfjölda 75,1%. Frá fjórða ársfjórðungi 2020 til fjórða ársfjórðungs 2021 fjölgaði starfandi fólki um 16.100 manns og hlutfall þess af mannfjölda hækkaði um 4,8 prósentustig. Hlutfall starfandi kvenna var 72,1 % og starfandi karla 77,9%. Starfandi konum fjölgaði um 7.200 og körlum um 8.900. Hlutfall starfandi fólks á höfuðborgarsvæðinu var 75,8% og utan höfuðborgarsvæðis 73,8%.\r\n\r\nTil samanburðar voru 184.400 starfandi á fjórða ársfjórðungi 2020 og hlutfall af mannfjölda 70,3%. Hlutfall starfandi kvenna var þá 67,7% og starfandi karla 72,7%. Þá var hlutfall starfandi fólks á höfuðborgarsvæðinu 70,6% og 69,8% utan höfuðborgarsvæðisins.",
  "innerBlocks": []
}
Vinnumarkaðurinn samanstendur af 200.500 manns - Skessuhorn