{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi Skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar 31. janúar var lagt til að verk vegna útboðs á uppsteypu á köldum potti við sundlaugina á Jaðarsbökkum yrði boðið út að nýju. Forsaga málsins er sú að fyrirtækið GS Import bauð í verkefnið þegar það var boðið út árið 2020. Tilboð GS Import var rétt rúmlega 8,7 milljónir en kostnaðaráætlun bæjarins var rúmlega 6,7 milljónir.\r\n\r\nViðræður hafa verið við forsvarsmenn GS Import í millitíðinni en niðurstaðan er sú að verkið verði boðið út að nýju með þeim breytingum að boðin verði út tímavinna en Akraneskaupstaður leggi fram efni til verksins.",
"innerBlocks": []
}
Bjóða út að nýju uppsteypu á köldum potti - Skessuhorn