
Scania árgerð 1977, körfubíll Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar, var síðasti bíllinn í eigu slökkviliðsins sem náð gat einhverri hæð. Hann hefur nú verið seldur en fyrir nokkrum árum var hann dæmdur ónothæfur af Vinnueftirlitinu. Ljósm. mm.
Nýr stigabíll á leiðinni til slökkviliðsins
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi Skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar 31. janúar síðastliðinn lagði ráðið það til að samið yrði við lægstbjóðanda um kaup á stigabíl fyrir Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Tvö tilboð bárust í bíl en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 95 milljónir króna. Ólafur Gíslason & Co. hf. - Eldvarnarmiðstöðin var með tilboð upp á tæplega 92 milljónir króna og tilboð frá Fastus ehf. hljóðaði upp á 115 milljónir.\r\n\r\nÍ fundargerð ráðsins frá því í apríl á síðasta ári beindi skipulags- og umhverfisráð því til bæjarráðs að gerður yrði viðauki vegna kaupa á útkallsbíl til Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Þá yrði skoðað með aðkomu Hvalfjarðarsveitar að kaupunum áður en endanlega fjárhæð í viðauka yrði ákveðin.\r\n\r\nAð sögn Jens Heiðars Ragnarssonar slökkviliðsstjóra seldi slökkviliðið í byrjun árs 2020 frá sér gamlan körfubíl sem var í raun úr sér genginn en stigabílar eru í dag algengari sem björgunartæki. Hann segir að þetta sé flókið ferli, ekki sé mikið til á markaðinum af notuðum slökkvibílum en smíðatíminn á nýjum bílum er um tvö ár. Nýi slökkvibílinn, sem er notaður stigabíll, kemur erlendis frá vonandi í mars eða apríl en þó á enn eftir að ganga frá nokkrum lausum endum varðandi útboð og þess háttar.\r\n\r\nÁ fundi skipulags- og umhverfisráðs frá 24. janúar var lagt til við bæjarráð að samþykkja að vera með í sameiginlegu útboði Ríkiskaupa um kaup á dælubifreiðum fyrir slökkviliðið. Þar var nefnt að dælubifreiðar Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar væru komnar á tíma og líkur væru á að hagstæð kjör gætu náðst í sameiginlegu útboði með öðrum sveitarfélögum á þessum bifreiðum. Ef af yrði verður bifreið afhent árið 2024 og kostnaðarfærð á því ári.",
"innerBlocks": []
}