Ljósm. úr safni.

Suðaustan ofsaveður með snjókomu aðfararnótt mánudags

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Gefin hefur verið út gul viðvörun um allt land fyrir aðfararnótt mánudagsins 7. febrúar. Þá verður suðaustan 23-30 m/s á Suður- og Vesturlandi, en gengur í suðaustan 18-25 á Norður- og Austurlandi. Snjókoma verður víða um land, en slydda eða rigning nærri sjávarmáli sunnanlands þegar kemur fram á morguninn. Hríðarveður og ófærð mun líklega raska samgöngum verulega, eða hamla þeim algjörlega. Í raun er ekkert ferðaveður meðan að á þessu illviðri stendur. Líkur eru á foktjóni á Suður- og Vesturlandi.",
  "innerBlocks": []
}
Suðaustan ofsaveður með snjókomu aðfararnótt mánudags - Skessuhorn