Björgunarsveit frá Selfossi í gær. Ljósm. af vef RUV.

Viðamestu leitaraðgerð síðari ára fram haldið í dag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Afar fjölmennri og umfangsmikilli leit að Cessna flugvél með fjórum innanborðs, sem fór frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 10:30 í gærmorgun, verður fram haldið í dag. Um borð í vélinni er íslenskur flugmaður og þrír erlendir farþegar. Leitin að vélinni skilaði ekki árangri í gær, en leitað var fram á nóttina. Um sjö hundruð manns tóku þátt í leitinni auk tveggja þyrla Landhelgisgæslunnar og flugvéla. Til leitar í dag hafa verið boðaðar björgunarsveitir af öllu landinu, raun allt þjálfað leitar- og björgunarfólk sem tiltækt er. Í gær var leitað eftir þeim vísbendingum sem bárust um mögulegar ferðir flugvélarinnar. Mestur þungi leitarinnar var á sunnanverðu landinu; vestur af Úlfljótsvatni, við Þingvallavatn og á Lyngdalsheiði. Þá var einnig leitað við Kleifarvatn. Leitarsvæðið verður nú víkkað út, m.a. í átt að Skjaldbreið.\r\n\r\nEftir hlé á leit síðari hluta nætur lögðu fyrstu hópar leitarmanna af stað í verkefni dagsins nú skömmu eftir klukkan átta. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu var verkefnum útdeilt til einstakra sveita og björgunarhópa eftir leitarsvæðum og þannig verður vinnu gærdagsins og næturinnar fram haldið. Leitarsvæðið er gríðarlega stórt og því mun reyna á mannskap og tæki í dag. Þá verður m.a. notast við þyrlur, dróna og báta við leitina og unnið eftir ýmsum mögulegum sviðsmyndum. Aðgerðum er stjórnað á nokkrum stöðum; m.a. frá Skógarhlíð, Selfossi og Akureyri auk smærri svæðisbundinna stjórnstöðva á vettvangi.\r\n\r\nVeðurspá er fremur hliðholl til leitar framan af degi. Ekki er spáð úrkomu, en það gæti blásið og því líkur á skafrenningi sem gæti gert leitaraðstæður erfiðari.",
  "innerBlocks": []
}
Viðamestu leitaraðgerð síðari ára fram haldið í dag - Skessuhorn