Borgarbraut 14 fær nýtt hlutverk

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Borgarbyggð hefur nú gengið frá kaupsamningi um húseignina Borgarbraut 14 í Borgarnesi. Húsið, sem er 1.053 fermetrar að stærð frá árinu 1960, var upphaflega byggt fyrir starfsemi Sparisjóðs Mýrasýslu en hefur síðustu árin verið Ráðhús sveitarfélagsins. Kaupandi þess er Steðji fjárfestingar ehf. og er kaupverðið 60 milljónir króna. Áform Steðja fjárfestinga ehf eru að innrétta íbúðir í húsinu.\r\n\r\nÍ byrjun síðasta árs fluttist meirihluti starfsemi Ráðhússins úr húsinu og að Bjarnarbraut 8 þegar ástandsskoðun á fasteigninni hafði leitt í ljós að mikill rakavandi væri til staðar. Ljóst var að endurbætur og lagfæringar á því yrðu mjög kostnaðarsamar og ákvað því sveitarstjórn að fjárfesta í nýju húsnæði fyrir Ráðhús. Sveitarfélagið festi svo kaup á húsi Arion banka við Digranesgötu síðasta sumar og fékk það hús formlega afhent í byrjun september.",
  "innerBlocks": []
}
Borgarbraut 14 fær nýtt hlutverk - Skessuhorn