Fréttir
Grunnskólinn í Borgarnesi. Ljósm. Skessuhorn/mm.

Verulegir annmarkar voru á vinnulagi og eftirliti við stækkun skóla

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "<strong>Saminn hefur verið verkferill til að slíkt endurtaki sig ekki í framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins</strong>\r\n\r\nByggðarráð Borgarbyggðar tók í morgun til umfjöllunar skýrslu vegna úttektar á framkvæmdum við stækkun og endurbætur á Grunnskólanum í Borgarnesi, sem fram fór á árunum 2014-2020. Í skýrslunni kemur fram að verulegir ágallar hafi verið á vinnulagi og eftirliti með framkvæmdinni. Nýir verkferlar verða teknir upp fyrir framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins í framtíðinni, en framundan er meðal annars að ráðast í skólabyggingu á Kleppjárnsreykjum og íþróttahús í Borgarnesi. Byggðarráð bókaði eftirfarandi:\r\n\r\n„Á síðasta ári lagði byggðarráð til að farið yrði í hlutlausa úttekt á ferli og eftirliti með framkvæmdum við húsnæði Grunnskólans í Borgarnesi, og var KPMG ráðið í verkið. Úttektarskýrslan liggur nú fyrir og ljóst er að annmarkar voru á vinnulagi og eftirliti stjórnsýslunnar allt frá upphafi framkvæmda árið 2014. Má þar helst nefna að ekki lá fyrir í upphafi með ítarlegum hætti hlutverk og ábyrgð byggingarnefndar, stjórnenda og eftirlits og þar af leiðandi skorti yfirsýn og ábyrgð á stöðu verkefnis í heild sinni. Ekki var gætt með fullnægjandi hætti að gildandi innkaupareglum sveitarfélagsins hvað varðar útboðsskyldu, varðandi einstaka þætti framkvæmdarinnar og útboðsgögn voru ekki unnin með fullnægjandi hætti.“\r\n\r\nÞá segir í bókuninni að með skýrslunni hafi komið skýrt fram hvaða atriði það voru sem fóru úrskeiðis við framkvæmdina og telur sveitarfélagið nauðsynlegt að gera úrbætur á því ferli sem hefur verið við framkvæmdir. „Á síðasta ári hófst vinna við að skoða annmarka við ferli og eftirlit framkvæmda sveitarfélagsins og í framhaldinu hefur verið unninn verkferill sem útskýrir hlutverk, ábyrgð og eftirlit allra aðila en ákveðnar úrbætur hafa þegar verið gerðar. Byggðarráð hefur á þessum fundi samþykkt að farið verði eftir framlögðum verkferli þar sem tekið hefur tillit til þeirra athugasemda sem KPMG gerði í framangreindri úttekt.“",
  "innerBlocks": []
}
Verulegir annmarkar voru á vinnulagi og eftirliti við stækkun skóla - Skessuhorn