Í fjárhúsunum á Kambi. Ljósm. Kalli á Kambi

ARR genið fannst ekki í þessari umferð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Eftir að hin svokallaða ARR arfgerð, sem er verndandi gegn riðuveiki, fannst í kindum frá Þernunesi við Reyðarfjörð vaknaði von um að hana væri einnig að finna á Kambi í Reykhólasveit því féð sem greindist á Reyðarfirði átti meðal annars ættir sínar að rekja til Kambs. Kambur er sölubú fyrir fé, selur gripi á fæti og varnarhólfið sem bærinn er í telst Mekka í ræktun á kollóttu fé. Tekin voru sýni úr fé á Kambi seinni hluta janúar mánaðar og þau send til greiningar í Þýskalandi.\r\n\r\nKomin er niðurstaða úr sýnunum sem tekin voru úr alls 45 kindum. Engin þeirra reyndist vera með ARR arfgerðina. Frá þessu greinir Karl Kristjánsson bónda á Kambi á facebook síðu sinni og bætir við að þetta hafi verið honum vonbrigði en fyrst búið er að finna genið á Þernunesi í Reyðarfirði segir hann líkur á að það leynist víðar.",
  "innerBlocks": []
}
ARR genið fannst ekki í þessari umferð - Skessuhorn