
Arnar Már vinnur á elstu deildinni á Garðaseli sem nefnist Vík. Ljósm. vaks.
Margt skemmtilegt við það að vinna á leikskóla
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Arnar Már Kárason er starfsmaður á Garðaseli á Akranesi og er að vinna á elstu deildinni, Vík, þar sem börn eru á aldrinum fjögurra til sex ára. Hann byrjaði að vinna í leikskólanum Akraseli þegar hann var í áttunda bekk vegna frjókornaofnæmis og fór því ekki í sumarvinnuna í vinnuskólanum heldur í leikskólann. Arnar Már hefur síðustu tvö sumur verið að vinna á Garðaseli og fékk fastráðningu síðasta haust. Krökkunum á Garðaseli finnst mjög gaman að Arnari Má og er hann vinsæll í þeirra röðum.\r\n\r\nEn hvernig er að vera eini karlmaðurinn sem vinnur í leikskólanum? „Það er allt í lagi, ekkert sem ég græt yfir og finnst það bara fínt. Krakkarnir eru þó ekkert að pæla í því að ég sé eini karlmaðurinn á svæðinu. Þá er fínt að vinna með öllum þessum konum, þær eru fínar og gott að spjalla við þær.“\r\n\r\n<em>Nánar er rætt við Arnar Má í Skessuhorni vikunnar.</em>",
"innerBlocks": []
}