Íbúar í Dölum hafa fengið nóg af lélegu farsímasambandi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Dagana 24. til 28. janúar síðastliðna safnaði Jóhanna María Sigmundsdóttir, íbúi og verkefnastjóri í Dalabyggð, saman upplýsingum um fjarskiptasamband meðal íbúa í sveitarfélaginu, þ.e. GSM- og Tetra samband og sambandsleysi í héraðinu. Þetta var gert á samfélagsmiðlum og var svörun gríðarmikil. Niðurstöður eru kort og pistill sem Jóhanna birti í kjölfarið: „Á meðfylgjandi mynd má sjá rauða punkta sem tákna tilkynningar íbúa um ekkert eða slitrótt farsímasamband. Einnig eru þarna gular stjörnur hvar mælingar Póst- og fjarskiptastofnunar á styrk merkja fyrir GSM, 3G og 4G sýna að samband geti rofnað eða sé slæmt/ekkert (athugið þó að þær mælingar voru gerðar á árunum 2015-2017). Síðast en ekki síst er vert að benda á grænu kassana á myndinni sem sýna hvar Tetra samband er lélegt eða ekkert.“\r\n\r\nJóhanna María bendir jafnframt á að; „inn á þetta kort eru ekki merktir þeir staðir sem missa farsímasamband þegar rafmagn fer af og slá því út vegna þess að varaafl senda er ónýtt eða lélegt. Ekki eru heldur tekin með þau svæði utan byggðar/vegarkafla sem eru með lélegt eða ekkert samband en eru nýtt svo sem af bændum, útivistarfólki og ferðamönnum.“\r\n\r\n<strong>Bíðum ekki eftir harmleik</strong>\r\n\r\nJóhanna segir einnig að með upplýsingunum sem hún safnaði hafi ótal sögur fylgt af atburðum, þar sem fólk hafi verið í hættu vegna sambandsleysis, m.a. í bílum í ófærð eða/og vondum veðrum. Fólk lætur í ljós mikið öryggisleysi og telur að stundum hafi munað litlu að illa færi.\r\n\r\n„Þá koma þessar aðstæður einnig niður á fyrirtækja- og atvinnurekstri á svæðinu með þeim hætti að ekki næst í aðila eða ekki berast tilkynningar um villur/bilanir frá tæknibúnaði sem treystir á farsímasamband. Þá komast íbúar ekki inn á þjónustusíður sem krefjast þess að notast sé við rafræn skilríki þar sem aðgerð er útrunnin áður en það kemst í gegnum kerfið,“ segir Jóhanna María.\r\n\r\nFleiri íbúar hafa tjáð sig í kjölfar þessarar samantektar og fólki er mikið niðri fyrir. Jóhanna María endar færsluna sína á: „Bíðum ekki eftir harmleik áður en gengið er til verka!“ Hún tekur þannig undir ákall íbúa um úrbætur stjórnvalda tafarlaust; „því allir íbúar þessa lands eiga að skipta máli.“",
  "innerBlocks": []
}
Íbúar í Dölum hafa fengið nóg af lélegu farsímasambandi - Skessuhorn