Fréttir

true

Síldardauðinn mikli í Kolgrafafirði rifjaður upp

Í byrjun febrúar fyrir níu árum síðan varð mikið umhverfisslys í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi þegar tugþúsundir tonna af síld gekk inn í fjörðinn og drapst. Þetta var í annað skiptið á tveimur mánuðum sem þetta gerðist. Fróðlegt getur verið að rifja upp slíkan atburð. Hér verður gripið niður í frásögn sem Áslaug Karen Jóhannsdóttir, þá…Lesa meira

true

„Eins og gardína hafi verið dregin frá“

Skagakonan Sólveig Salvör Sigurðardóttir, eða Sissa eins og flestir þekkja hana, fékk heilablóðfall í september 2006 sem umturnaði lífi hennar. Sissa lamaðist í vinstri hlið líkamans auk þess sem það blæddi yfir á sjónsviðið hjá henni svo hún hefur ekkert getað séð vinstra megin við sig frá þeim tíma. Sissa fór nú í janúar til…Lesa meira

true

Uppsagnir sökum aldurs óheimilar

Óheimilt er að segja fólki upp störfum sökum aldurs, samkvæmt nýjum úrskurði kærunefndar jafnréttismála sem féll í máli manns sem sagt var upp hjá Isavia á þeim grundvelli að hann hefði náð 67 ára aldri. „Úrskurðurinn er sá fyrsti sinnar tegundar og má í vissum skilningi tala um grundvallarniðurstöðu í vinnuréttar- og jafnréttismálum. Viðbúið er…Lesa meira

true

Þorsteinn Eyþórsson á að baki 45 ára starfsferil í rusli

Í gær, þriðjudaginn 1. febrúar, voru 45 ár liðin frá því Borgnesingurinn Þorsteinn Eyþórsson byrjaði í sorpbransanum, en hann var aðeins 22 ára gamall þegar hann bauð í sorphreinsun í Borgarnesi og fékk verkefnið. Blaðamaður Skessuhorns kíkti til Steina, eins og hann er alltaf kallaður, í Fíflholtum á Mýrum í tilefni áfangans og ræddi við…Lesa meira

true

Grundarfjörður missti af sæti í Krakkakvissi

Krakkakviss er nýr og skemmtilegur spurningaþáttur þar sem keppt er í þriggja manna liðum og er hann sýndur á Stöð 2. Stjórnendur þáttarins eru þau Mikael Emil Kaaber og Berglind Alda Ástþórsdóttir og líkt og í Kviss þáttunum vinsælu sem eru einnig sýndir á Stöð 2 keppa öll liðin fyrir hönd síns íþróttafélags. Keppendur í…Lesa meira

true

Guðveig reiðubúin áfram til forystu í Framsókn

Guðveig Lind Eyglóardóttir, oddviti Framsóknarflokks í sveitarstjórn Borgarbyggðar, hefur ákveðið að gefa kost á sér áfram til forystu á listann fyrir kosningarnar í vor. „Ég er stolt og þakklát fyrir þá hvatningu sem ég hef fengið síðustu daga úr ólíkum áttum, og jafnframt fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt síðan árið 2014 þegar…Lesa meira

true

Lilja Björg vill áfram stýra Sjálfstæðisflokknum

Lilja Björg Ágústsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Borgarbyggð og forseti sveitarstjórnar tilkynnti í gærkvöldi um þá ákvörðun sína að gefa kost á sér áfram í oddvitasæti listans fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þá ákvörðun tók hún í kjölfar fundar með uppstillingarnefnd flokksins. „Uppstillingarnefnd er nú að störfum og kemur tillaga hennar að röðun listans í ljós á…Lesa meira

true

Ragnar vill leiða lista Framsóknar og frjálsra

Ragnar Baldvin Sæmundsson bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins og frjálsra á Akranesi tilkynnti það í gærkvöldi að hann hygðist gefa kost á sér til forystu á listann. Eins og kunnugt er hafði Elsa Lára Arnardóttir, núverandi oddviti listans og aðstoðarskólastjóri, tilkynnt að hún gæfi ekki kost á sér til forystu áfram. Ragnar hefur setið í bæjarstjórn undanfarið kjörtímabil…Lesa meira

true

Venus kom með loðnufarm á Akranes

Laust fyrir klukkan fimm í morgun bakkaði Venus NS, eitt af uppsjávarveiðiskipum Brims, inn í Akraneshöfn með sinn þriðja loðnufarm á þessari vertíð. Allar vinnslur við landið eru fullar af loðnu og bið eftir að komast að og því hefur að undanförnu verið siglt með loðnu til Noregs og Færeyja til vinnslu. Venus fékk aflann…Lesa meira

true

Borgarbraut komin í umsjón Borgarbyggðar

Í nýjustu dagbókarfærslu sveitarstjóra Borgarbyggðar, Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, er farið yfir helstu mál sem eru á dagskrá hjá sveitarfélaginu í upphafi árs. Þar kemur meðal annars fram yfirfærsla Borgarbrautar í Borgarnesi frá Vegagerðinni til sveitarfélagsins. Um er að ræða vegarkaflann frá gatnamótunum á móts við Vegagerðina og niður að Egilsgötu. Vegalög voru sett á Alþingi…Lesa meira