
Mikael Emil og Berlind Alda, stjórnendur Krakakviss.
Grundarfjörður missti af sæti í Krakkakvissi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Krakkakviss er nýr og skemmtilegur spurningaþáttur þar sem keppt er í þriggja manna liðum og er hann sýndur á Stöð 2. Stjórnendur þáttarins eru þau Mikael Emil Kaaber og Berglind Alda Ástþórsdóttir og líkt og í Kviss þáttunum vinsælu sem eru einnig sýndir á Stöð 2 keppa öll liðin fyrir hönd síns íþróttafélags. Keppendur í Krakkakvissi eru allir nemendur í 5. til 7. bekk (10-12 ára) í grunnskóla og þurfa keppendur af báðum kynjum að vera í öllum liðum keppninnar. Tökur á þáttunum fóru fram í lok nóvember og hófust sýningar í janúar á þessu ári. Leikar hófust í átta liða úrslitum og eru þrjú lið komin í undanúrslit en það eru lið KR, Keflavíkur og Selfoss. Síðasta viðureignin í átta liða úrslitunum fer fram næsta laugardag og þar mætast lið Stjörnunnar og lið Ármanns.\r\n\r\nÁður en þættirnir fóru í loftið auglýsti Stöð 2 eftir liðum til að taka þátt og bárust umsóknir frá hundruðum liða og var heildarfjöldi umsækjanda um 1300 krakkar. Lið Grundarfjarðar náði þeim góða árangri að komast í átta liða úrslitin en daginn sem átti að taka þáttinn þeirra upp þurfti einn úr liðinu að fara í sóttkví og urðu þau því miður að gefa sætið frá sér. Sorglegt og svekkjandi fyrir lið Grundarfjarðar en vonandi að þau mæti til leiks í næsta Krakkakvissi ef af því verður.",
"innerBlocks": []
}