{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Guðveig Lind Eyglóardóttir, oddviti Framsóknarflokks í sveitarstjórn Borgarbyggðar, hefur ákveðið að gefa kost á sér áfram til forystu á listann fyrir kosningarnar í vor. „Ég er stolt og þakklát fyrir þá hvatningu sem ég hef fengið síðustu daga úr ólíkum áttum, og jafnframt fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt síðan árið 2014 þegar ég tók fyrst oddvitasætið fyrir Framsókn. Síðustu átta ár í sveitarstjórn hafa verið lærdómsrík og ég hef notið þess að vinna með og kynnast breiðum hópi fólks á ýmsum vettvangi samfélagsins og stjórnmálanna. Ég hafði fyrir nokkru tilkynnt að ég myndi láta hér staðar numið í vor og gefa ekki kost á mér annað kjörtímabil. Ein helsta ástæðan fyrir því að ég ákvað að taka þessari áskorun, er hversu bjartsýn ég er á framtíð Borgarbyggðar,“ <a href=\"https://skessuhorn.is/adsendar-greinar/undirbuningur-ad-blomaskeidi-i-borgarbyggd/\">skrifar hún m.a. í aðsendri grein í Skessuhorni.</a>\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}
Guðveig reiðubúin áfram til forystu í Framsókn - Skessuhorn