
Gatnamótin í Borgarnesi við Þjóðveg 1. Borgarbyggð hefur nú tekið yfir umsjón götunnar sem er ekki lengur þjóðvegur í þéttbýli. Ljósm. glh.
Borgarbraut komin í umsjón Borgarbyggðar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í nýjustu dagbókarfærslu sveitarstjóra Borgarbyggðar, Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, er farið yfir helstu mál sem eru á dagskrá hjá sveitarfélaginu í upphafi árs. Þar kemur meðal annars fram yfirfærsla Borgarbrautar í Borgarnesi frá Vegagerðinni til sveitarfélagsins. Um er að ræða vegarkaflann frá gatnamótunum á móts við Vegagerðina og niður að Egilsgötu. Vegalög voru sett á Alþingi árið 2007 þar sem ákveðið var að rúmlega 70 kílómetrar þjóðvega í þéttbýli falla ekki lengur undir þjóðvegakerfið og urðu sveitarfélagavegir. Frá og með síðustu áramótum tók Borgarbyggð við veghaldi, viðhaldi og þjónustu við veginn og mun nú sveitarfélagið alfarið sjá til dæmis um snjómokstur sem fram til þessa hefur verið í umsjón Vegagerðarinnar. Hins vegar er Vegagerðinni skylt að skila veginum í góðu ásigkomulagi til sveitarfélagsins og verður því ráðist í miklar endurbætur á Borgarbrautinni af Vegagerðinni, Veitum og Borgarbyggð á þessu ári. „Miklar endurbætur verða gerðar á þessum kafla Borgarbrautarinnar, frá undirlagi og lögnum að yfirborði og gangstéttum að hluta, en áætlað er að framkvæmdinni ljúki fyrir árslok 2022,“ segir Þórdís Sif sveitarstjóri í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}