{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Lilja Björg Ágústsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Borgarbyggð og forseti sveitarstjórnar tilkynnti í gærkvöldi um þá ákvörðun sína að gefa kost á sér áfram í oddvitasæti listans fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þá ákvörðun tók hún í kjölfar fundar með uppstillingarnefnd flokksins. „Uppstillingarnefnd er nú að störfum og kemur tillaga hennar að röðun listans í ljós á næstunni,“ segir hún. Lilja Björg hefur komið að sveitarstjórnarmálum síðan árið 2012 og síðustu fjögur ár verið forseti sveitarstjórnar. „Ég hef áhuga á því að bjóða áfram fram krafta mína og reynslu í þágu sveitarfélagsins til að gera það enn sterkara og eftirsóttan stað til á búa á. Ég fer inn í þá vegferð full af auðmýkt og hlakka til að taka samtalið við íbúa sveitarfélagsins varðandi stefnumörkun næstu fjögurra ára.“",
"innerBlocks": []
}
Lilja Björg vill áfram stýra Sjálfstæðisflokknum - Skessuhorn