Steini Eyþórs hefur verið í rusli í 45 ár. Ljósm. arg.

Þorsteinn Eyþórsson á að baki 45 ára starfsferil í rusli

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær, þriðjudaginn 1. febrúar, voru 45 ár liðin frá því Borgnesingurinn Þorsteinn Eyþórsson byrjaði í sorpbransanum, en hann var aðeins 22 ára gamall þegar hann bauð í sorphreinsun í Borgarnesi og fékk verkefnið. Blaðamaður Skessuhorns kíkti til Steina, eins og hann er alltaf kallaður, í Fíflholtum á Mýrum í tilefni áfangans og ræddi við hann um árin í ruslinu. Steini vann á Bílastöðinni í Borgarnesi þegar hann ákvað að breyta um stefnu og fara yfir í ruslið. Fyrstu árin sá hann um hreinsun í Borgarnesi og fljótlega vatt starfið upp á sig og fleiri sveitarfélög bættust við auk dreifbýlisins. „Ég prófaði líka smá tilraunaverkefni þar sem ég fór að hreinsa á Hvammstanga og Skagaströnd og varð það til þess að þeir fóru út í þetta fyrirkomulag og fengu verktaka til að sjá um sorphirðu,“ segir Steini en hann rak Gámaþjónustu Vesturlands um árabil.\r\n\r\n<em>Sjá spjall við Steina Eyþórs í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Þorsteinn Eyþórsson á að baki 45 ára starfsferil í rusli - Skessuhorn