Svipmynd frá Búðardal. Núverandi útibú bankans er í pósthúsinu. Ljósm. sm.

Arion banki ákveður að loka útibúi sínu í Búðardal

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Viðskiptavinum Arion banka í Búðardal hefur borist tölvupóstur frá bankanum þess efnis að tilkynnt er um lokun bankaútibúsins í Búðardal. „Nú er komið að útibúinu okkar í Búðardal en það mun sameinast útibúinu okkar í Borgarnesi. Afgreiðslan í Búðardal mun í framhaldinu loka. Breytingin mun taka gildi 31. mars nk. Starfsfólk útibúsins verður áfram hluti af teymi okkar á Vesturlandi,“ skrifar Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, svæðisstjóri Arion banka á Vesturlandi í bréfinu.\r\n\r\nÞessi lokun hefur haft talsverðan aðdraganda, bæði í formi fækkunar og uppsagnar starfsmanna á síðustu árum og í mikilli skerðingu á opnunartíma útibúsins, sem fram að lokun verður opinn átta tíma á viku, sem skiptist á tvo daga. Lokunin kemur íbúum því ekki á óvart, enda hefur útibúum viðskiptabankanna á landsbyggðinni verið fækkað kerfisbundið undanfarin ár og sífellt fleiri íslensk þorp orðin án bankaþjónustu. Eftir lokun útibúsins verður, samkvæmt bréfinu, hægt að nota hraðbankann í Búðardal til að millifæra, greiða reikninga, leggja inn eða taka út. Loks bendir Sindri einnig á að fram að lokun verði hægt að fá aðstoð við að læra á stafrænar þjónustuleiðir bankans.\r\n\r\nMeð þessari lokun verður jafn greiðfær, eða ógreiðfær leið, íbúa í Dölum að fjármálastofnunum, hverju nafni sem þær nefnast. Nútíma bankaviðskipti byggjast nefnilega á að fjarskipti séu í lagi, en það eru þau ekki eins og ítarlega hefur komið fram í Skessuhorni að undanförnu.",
  "innerBlocks": []
}