Bjarki er að vinna á Læk á Akraseli. Ljósm. vaks.

„Kýs frekar það sem er gott fyrir andlegu heilsuna“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Bjarki Aron Laxdal Sigurðsson er að vinna í leikskólanum Akraseli við Ketilsflöt á Akranesi. Bjarki var áður að vinna í Norðuráli á Grundartanga og fannst það frekar glatað. Hann ákvað því að breyta um starfsvettvang og segir að á Akraseli hafi hann algjörlega fundið sig en hann hefur unnið í skólanum í fjögur og hálft ár ásamt því að vera í millitíðinni eitthvað í námi með vinnu. Bjarki segir að honum finnist æðislegt að vinna hérna, fínt fólk og ennþá betri börn. Hann vinnur núna á deildinni Læk þar sem yngstu börnin eru 2-3 ára en hefur unnið á öllum deildum leikskólans á þessum árum. Aðspurður hvað sé skemmtilegasti aldurinn að vinna með, svarar Bjarki: „Það eru plúsar og mínusar alls staðar, þessi yngri eru mikið að knúsa mann á meðan þau eldri eru meira á spjallinu. Þetta er geggjaður vinnustaður, það er frábært að geta verið maður sjálfur alla daga og ekkert leiðinlegt nema kannski kúkableyjurnar sem eru þó lítið að trufla, þetta venst allt.“\r\n\r\n<em>Sjá nánar spjall við Bjarka Aron í Skessuhorni vikunnar.</em>",
  "innerBlocks": []
}
„Kýs frekar það sem er gott fyrir andlegu heilsuna“ - Skessuhorn