Fréttir

true

Grundarfjörður verði barnvænt sveitarfélag

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar ákvað á fundi 20. janúar síðastliðinn að Grundarfjarðarbær verði „Barnvænt sveitarfélag“. Barnvæn sveitarfélög er verkefni sem styður sveitarfélög við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla sína stjórnsýslu og starfsemi. Verkefnið byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities Initiative (CFCI), sem hefur verið innleitt í þúsundum sveitarfélaga út um allan heim frá…Lesa meira

true

Framlenging viðspyrnustyrkja

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mun á næstu dögum leggja fyrir Alþingi frumvarp ríkisstjórnarinnar um framhald á viðspyrnustyrkjum vegna sóttvarnaráðstafana. Gert er ráð fyrir að styrkirnir verði framlengdir í fjóra mánuði, frá desember 2021 til mars 2022. Viðspyrnustyrkir voru veittir til að aðstoða rekstraraðila við að standa undir rekstrarkostnaði frá nóvember 2020 og út nóvember 2021. Styrkirnir…Lesa meira

true

Sundfólk frá ÍA stóð sig vel á RIG 2022

Sundmótið Reykjavík International Games-RIG 2022 fór fram um helgina í Laugardalslaug. RIG er fyrsta sundmótið í 50 metra laug á tímabilinu og í ár var keppnin sterk með félögum frá Danmörku, Færeyjum, Grænlandi og Noregi. Fjórir Ólympíufarar voru á mótinu og samtals voru keppendur 233 frá 22 félögum. Sundfélag Akraness sendi alls 13 sundmenn á…Lesa meira

true

Leggja til að húsnæðisliðurinn verði tekinn út úr vísitölunni

Þingflokkur Flokks fólksins hefur lagt fram frumvarp þess efnis að húsnæðisliðurinn verði tekinn út úr vísitölu neysluverðs. „Verðbólga mælist nú langt umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Stærsti einstaki orsakavaldurinn er sífellt hækkandi húsnæðisverð. Þetta veldur keðjuverkandi áhrifum sem leiða til þess að greiðslubyrði heimilanna þyngist og lánin hækka til muna,“ segir í tilkynningu frá FF. Verðbólga…Lesa meira

true

Heiður er íþróttamaður Umf. Reykdæla

Íþróttanefnd Ungmennafélags Reykdæla í Borgarfirði veitti um helgina íþróttamanni Umf. Reykdæla viðurkenningu fyrir sinn árangur. Að þessu sinni var það Heiður Karlsdóttir sem hreppti titilinn fyrir körfubolta. Á Facebook síðu Umf. Reykdæla er árið 2021 hjá Heiði í körfuboltanum rakið. Hún æfði og spilaði með meistaraflokki Skallagríms í körfubolta framan af árinu 2021. Hún var…Lesa meira

true

Kraftlyftingafólk frá ÍA stóð sig vel

Keppni í klassískum kraftlyftingum á Reykjavíkurleikunum -RIG 2022 fór fram um helgina og sendi Kraftlyftingafélag Akraness þrjá keppendur á mótið. Keppt var að stigum og stóðu þeir sig allir vel. Sylvía Ósk Rodriguez bætti sig um fimm kg í hnébeygju og lyfti þar þyngst 150 kg. Hún fór létt með 80 kg í bekkpressu og…Lesa meira

true

Svanur RE kom drekkhlaðinn af loðnu

Svanur RE-45 kom á þriðja tímanum í nótt inn til loðnulöndunar á Akranesi. Aflinn var nánast fullfermi, eða 1700-1800 tonn. Svanur er í eigu Brims og var að koma á Akranes í sína fyrstu löndun á vertíðinni. Skipið hét síðast Ilvid GR en var nýlega keypt í flota Brims. Skipið er 1.969 brúttótonn, smíðað 1999,…Lesa meira

true

Innflekaskjálftar ekki ólíkir Síðufjallsskjálftanum 1974

Að sögn Einars Bessa Gestssonar, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands, eru jarðskjálftarnir í ofanverðum Borgarfirði svokallaðir innflekaskjálftar þar sem þeir eru utan flekaskila og flekamóta og ekki inni á eldvirku svæði. „Skjálftarnir verða líklega vegna einhverra spennubreytinga inni á flekanum. Flekamótin eru þarna austan við þetta svæði og hugsanlegt er að einhverjar hreyfingar séu á flekamótunum…Lesa meira

true

Snarpasti jarðskjálftinn til þessa í ofanverðum Borgarfirði

Stærsti jarðskjálftinn í hrinu, sem staðið hefur yfir frá áramótum, varð á Þóreyjartungum í ofanverðum Borgarfirði laust eftir miðnætti í nótt, nánar til tekið kl. 00:05. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands var skjálftinn 3,7 stig og upptök hans voru á um fjögurra kílómetra dýpi. Þá hefur mikill fjöldi minni skjálfta fylgt í kjölfarið. Íbúar í…Lesa meira

true

ÍA tapaði fyrir Fjölni

Á sunnudagskvöldið áttust við lið Skagamanna og Fjölnis í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram á Akranesi. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta en ÍA seig fram úr seinni hlutann og staðan 19:15 ÍA í vil. Í byrjun annars leikhluta náði ÍA tíu stiga forystu og hélt því nokkurn veginn…Lesa meira