Hér er búið að merkja á Google kort upptök skjálftanna og fjarlægð á næstu bæi. Graf: Stefán Magnússon.

Innflekaskjálftar ekki ólíkir Síðufjallsskjálftanum 1974

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Að sögn Einars Bessa Gestssonar, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands, eru jarðskjálftarnir í ofanverðum Borgarfirði svokallaðir innflekaskjálftar þar sem þeir eru utan flekaskila og flekamóta og ekki inni á eldvirku svæði. „Skjálftarnir verða líklega vegna einhverra spennubreytinga inni á flekanum. Flekamótin eru þarna austan við þetta svæði og hugsanlegt er að einhverjar hreyfingar séu á flekamótunum sem hafa þessi áhrif inn á flekann. En eins og Páll Einarsson hefur bent á er þetta mjög verðugt rannsóknarefni,“ sagði Einar Bessi í samtali við Skessuhorn nú rétt í þessu. „Í Borgarfirði hafa komið svona hrinur af innflekaskjálftum í gegnum árin og á síðustu öld voru fimm svona hrinur. Sú stærsta var árið 1974 en þá varð skjálfti þarna í nágrenninu upp á 5,5 að stærð, oftast kallaður Borgarfjarðarskjálftinn,“ segir Einar Bessi og vísar þar til skjálftans sem átti upptök sín í Síðufjallinu.\r\n\r\nJarðskjálftinn í nótt fannst víða en Veðurstofu Íslands hafa borist nokkrir tugir tilkynninga frá fólki sem fann skjálftann í Borgarfirði, á Akranesi og á höfuðborgarsvæðinu.",
  "innerBlocks": []
}
Innflekaskjálftar ekki ólíkir Síðufjallsskjálftanum 1974 - Skessuhorn