Leggja til að húsnæðisliðurinn verði tekinn út úr vísitölunni
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þingflokkur Flokks fólksins hefur lagt fram frumvarp þess efnis að húsnæðisliðurinn verði tekinn út úr vísitölu neysluverðs. „Verðbólga mælist nú langt umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Stærsti einstaki orsakavaldurinn er sífellt hækkandi húsnæðisverð. Þetta veldur keðjuverkandi áhrifum sem leiða til þess að greiðslubyrði heimilanna þyngist og lánin hækka til muna,“ segir í tilkynningu frá FF.\r\n\r\nVerðbólga mælist nú 5,7% en væri 3,7% ef húsnæðisliðurinn er tekinn út. Helstu greiningaraðilar spá áframhaldandi hækkunum á húsnæðisverði, m.a. vegna framboðsskorts á húsnæði. Því er útlit fyrir verulegar hækkanir á vísitölu neysluverðs á næstu misserum vegna hækkandi húsnæðisverðs.\r\n\r\n„Það vita allir hvaða skelfilegu afleiðingar verðbólgan hafði á verðtryggð lán íslenskra heimila í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Þar tvöfölduðust skuldir heimilanna á einni nóttu og hátt í 15.000 fjölskyldur misstu heimili sín. Þetta má aldrei gerast aftur. Til að sporna gegn hörðustu áhrifum verðbólgunnar á heimilin er lagt til í frumvarpinu að húsnæðisliðurinn verði felldur út úr vísitölu neysluverðs. Þetta fyrirkomulag tíðkast víða, t.d. í verðbólgumælingum ESB. Með slíkri breytingu má draga verulega úr mældri verðbólgu og þar með hörðustu áhrifum vísitöluhækkana á fjárhag fjölskyldufólks, sérstaklega þeirra sem sitja fastir í viðjum verðtryggðra húsnæðisskuldbindinga.“",
"innerBlocks": []
}
Leggja til að húsnæðisliðurinn verði tekinn út úr vísitölunni - Skessuhorn