Ærslast í Grundarfirði. Ljósm. tfk.

Grundarfjörður verði barnvænt sveitarfélag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar ákvað á fundi 20. janúar síðastliðinn að Grundarfjarðarbær verði „Barnvænt sveitarfélag“.\r\n\r\nBarnvæn sveitarfélög er verkefni sem styður sveitarfélög við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla sína stjórnsýslu og starfsemi. Verkefnið byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities Initiative (CFCI), sem hefur verið innleitt í þúsundum sveitarfélaga út um allan heim frá árinu 1996, eins og segir á vef verkefnisins. Verkefnið byggir jafnframt á efni frá umboðsmönnum barna í Noregi og Svíþjóð og UNICEF í Finnlandi. UNICEF á Íslandi hefur umsjón með verkefninu en verkefnið er stutt af félagsmálaráðuneytinu.\r\n\r\nSveitarfélög sem taka þátt og innleiða Barnasáttmálann að fullu, hljóta í lok innleiðingarferlis viðurkenningu sem Barnvæn sveitarfélög. Akureyrarbær var fyrsta sveitarfélagið til að ljúka innleiðingu og hljóta þá viðurkenningu en auk hans hafa t.d. Borgarbyggð og Akraneskaupstaður hafið vinnu við innleiðinguna. Innleiðingarferlið tekur að minnsta kosti tvö ár og skiptist í átta skref sem sveitarfélag stígur með það að markmiði að virða og uppfylla réttindi barna. Að tveimur árum liðnum getur sveitarfélagið sótt um viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi. Hljóti sveitarfélagið viðurkenninguna þá gildir hún í þrjú ár en til að viðhalda viðurkenningunni þarf sveitarfélagið að halda innleiðingunni áfram, setja sér ný markmið og óska eftir nýju mati að þremur árum liðnum.\r\n\r\nGrundarfjarðarbær mun á næstu vikum hefja þessa vegferð til innleiðingar og verður Ólafur Ólafsson, nýráðinn íþrótta- og tómstundafulltrúi Grundarfjarðarbæjar, tengiliður vegna verkefnisins. Verkefnið krefst aðkomu allra nefnda bæjarins en ungmennaráð mun þó hafa sérstakt hlutverk og aukið vægi.",
  "innerBlocks": []
}
Grundarfjörður verði barnvænt sveitarfélag - Skessuhorn