
Svanur bakkar hér inn í höfnina. Ljósm. Guðm. St. Valdimarsson.
Svanur RE kom drekkhlaðinn af loðnu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Svanur RE-45 kom á þriðja tímanum í nótt inn til loðnulöndunar á Akranesi. Aflinn var nánast fullfermi, eða 1700-1800 tonn. Svanur er í eigu Brims og var að koma á Akranes í sína fyrstu löndun á vertíðinni. Skipið hét síðast Ilvid GR en var nýlega keypt í flota Brims. Skipið er 1.969 brúttótonn, smíðað 1999, það er 67 metra langt og 13 metra breitt.",
"innerBlocks": []
}