ÍA tapaði fyrir Fjölni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á sunnudagskvöldið áttust við lið Skagamanna og Fjölnis í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram á Akranesi. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta en ÍA seig fram úr seinni hlutann og staðan 19:15 ÍA í vil. Í byrjun annars leikhluta náði ÍA tíu stiga forystu og hélt því nokkurn veginn fram í miðjan leikhlutann. Fjölnir náði þó að koma aðeins til baka þegar leið að hálfleik og munurinn sex stig þegar hálfleiksflautan gall, 38:32 fyrir ÍA.\r\n\r\nÍA var áfram með tögl og haldir í leiknum og var alltaf skrefinu á undan. Það var ekki fyrr en undir lok þriðja leikhluta sem Fjölnir náði að komast inn í leikinn og staðan orðin jöfn, 55:55, þegar liðin gerðu sig tilbúin fyrir lokahnykkinn. Spennan hélt áfram í leiknum og þegar tæplega fjórar mínútur voru eftir var staðan 70:72 fyrir Fjölni. Þær mínútur nýttu gestirnir sér hins vegar vel því þeir skoruðu 14 stig gegn níu stigum heimamanna og lokastaðan 79:86 fyrir Fjölni.\r\n\r\nStigahæstir hjá ÍA voru þeir Lucien Christofis með 26 stig, Aron Elvar Dagsson var með 17 stig og 13 fráköst og Cristopher Clover með 17 stig. Hjá Fjölni var Dwayne Foreman Jr. með 31 stig og 14 fráköst, Daníel Ágúst Halldórsson með 20 stig og 11 fráköst og Ólafur Ingi Styrmisson með 12 stig og 17 fráköst.\r\n\r\nNæsti leikur Skagamanna er heimaleikur gegn Haukum frá Hafnarfirði föstudaginn 4. febrúar og hefst klukkan 19.15.",
  "innerBlocks": []
}
ÍA tapaði fyrir Fjölni - Skessuhorn