Heiður er íþróttamaður Umf. Reykdæla

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Íþróttanefnd Ungmennafélags Reykdæla í Borgarfirði veitti um helgina íþróttamanni Umf. Reykdæla viðurkenningu fyrir sinn árangur. Að þessu sinni var það Heiður Karlsdóttir sem hreppti titilinn fyrir körfubolta. Á Facebook síðu Umf. Reykdæla er árið 2021 hjá Heiði í körfuboltanum rakið. Hún æfði og spilaði með meistaraflokki Skallagríms í körfubolta framan af árinu 2021. Hún var valin í U16 landslið og spilaði með því og var til dæmis í byrjunarliðinu gegn Eistlandi á Norðurlandamótinu síðasta sumar. Heiður gerði svo samning og spilar með stúlkna- og meistaraflokki Fjölnis. „Heiður er mjög einbeitt og frábær íþróttamaður sem stundar sína íþrótt af mikill alvöru og er frábær fyrirmynd fyrir annað íþróttafólk,“ segir í tilkynningunni.\r\n\r\nÍ öðru sæti í vali á íþróttamanni Umf. Reykdæla var Skírnir Ingi Hermannsson. Skírnir æfir og spilar körfubolta með sameiginlegur liði Umf. Reykdæla og Skallagríms í 9. og 10. flokki. Hann spilar næstum allar mínútur í öllum leikjum og er „mikilvægur hlekkur í liðinu.“ Skírnir æfir af kappi og er fyrirmynd fyrir aðra íþróttamenn. Í þriðja sæti var Lisbeth Inga Kristófersdóttir, einnig fyrir körfubolta. Lisbeth Inga lék með 10. flokki stúlkna og meistaraflokki Skallagríms. „Þá æfði hún aðeins í sumar með Heffingen í Lúxemborg, fór svo til Ísafjarðar og samdi við Vestra,“ segir í tilkynningunni um val á íþróttamanni Umf. Reykdæla. Lisbeth sleit krossband á árinu og bíður eftir að komast í aðgerð.",
  "innerBlocks": []
}
Heiður er íþróttamaður Umf. Reykdæla - Skessuhorn