Fréttir

true

Haldið til loðnuleitar austan og norðan við landið

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson hélt úr Hafnarfjarðarhöfn í morgun til loðnukönnunar. Könnunin er gerð í samstarfi við útgerðir uppsjávarveiðiskipa sem greiða fyrir þann aukakostnað Hafrannsóknastofnunar sem af henni hlýst. Markmiðið er að safna upplýsingum um göngur og dreifingu loðnustofnsins austan og norðan við land. Slíkar upplýsingar hjálpa til að ákveða, hvenær það sé líklegast til árangurs…Lesa meira

true

Snjótroðarinn Inga hélt í sína fyrstu ferð

Skíðadeild Snæfellsness festi á dögunum kaup á snjótroðara, eins og sagt var frá í Skessuhorni á síðasta ári. Troðarinn er nýkominn til landsins og í síðustu viku var svo loksins komið að því að prufukeyra tækið. Troðarinn hefur hlotið nafnið Inga, nefndur eftir Ingibjörgu S. Kristjánsdóttur, eiginkonu Guðmundar Runólfssonar heitins, en hún hefði orðið 100…Lesa meira

true

Dalabyggð gerir samning við Leikklúbb Laxdæla

Undirritaður hefur verið samstarfssamningur milli Dalabyggðar og Leikklúbbs Laxdæla og eru markmið hans meðal annars að hvetja til og styrkja starfsemi leikklúbbsins og styðja við öflugt og fjölbreytt menningarlíf. Með samningnum fær klúbburinn afnot af aðstöðu fyrir bæði búnað og æfingar en styrkurinn er metinn á eina og hálfa milljón króna. Fram kemur á heimasíðu…Lesa meira

true

Enn leitað að Modestas Antanavicius

Enn er leitað að Modestas Antanavicius, 46 ára karlmanni sem lögreglan á Vesturlandi lýsti eftir í gær. Síðast er vitað um ferðir Modestas í Borgarnesi laugardaginn 7. janúar. Björgunarsveitir voru kallaðar út til leitar klukkan 14 í gær og var leitað fram á nótt í nágrenni Borgarness án árangurs. Leit fór af stað aftur núna…Lesa meira

true

Þorrablótin eru fram undan

Bóndadagurinn er 20. janúar næstkomandi en þá hefst Þorrinn. Landsmenn til sjávar og sveita hafa nú eftir þriggja ára bið möguleika á því að halda þorrablót án nokkurra takmarkana, en blót síðustu tveggja ára voru ýmist felld niður eða haldin í stafrænu streymi. Skessuhorn tók saman þau blót sem auglýst hafa verið almenningi á Vesturlandi.…Lesa meira

true

Ný ábendingagátt komin í loftið

Ný útgáfa af ábendingagátt fór í loftið fyrir helgi á vef Borgarbyggðar. Um er að ræða nýtt viðmót sem hefur verið í þróun í nokkurn tíma. Nýja ábendingagáttin er notendavænni en fyrri útgáfa og gerir íbúum kleift að merkja inn staðsetningar og einnig er hægt að setja inn myndir. Auk þess virkar nýja viðmótið vel…Lesa meira

true

Ráðherra flytur skrifstofu sína í Borgarbyggð

Í dag, miðvikudaginn 11. janúar, ætlar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að vera með skrifstofu sína í Borgarbyggð. Heldur hún áfram ferð sinni um landið sem hún hóf á síðasta ári. Á hverri starfsstöð er ráðherra með opna viðtalstíma þar sem allir áhugasamir eru velkomnir í stutt og milliliðalaust spjall um málefni á…Lesa meira

true

Rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum verður á Bifröst

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst, hafa undirritað samning um stofnun rannsóknaseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum sem starfrækt verður á Bifröst. „Markmið samningsins er að efla jákvæða byggðaþróun og styrkja sveitarstjórnarstigið á Íslandi með markvissum rannsóknum sem stuðla að hlutlægri og faglegri umræðu og leiða til betri stefnumótunar og…Lesa meira

true

VÍS bikarvikan hefst í dag með leik Snæfells og Hauka

Hin árlega VÍS bikarvika hefst í dag með undanúrslitaleikjum kvenna og á morgun leika karlaliðin sín undanúrslit. Fram undan eru tólf leikir á sex dögum, þar sem tíu bikarmeistarar verða krýndir frá 9. flokki upp í meistaraflokk. Eins og áður sagði hefst vikan á undanúrslitaleikjum kvenna. Fyrri leikurinn hefst klukkan 17:15 í dag en það…Lesa meira

true

Leit að hefjast við Borgarnes

Lögreglan á Vesturlandi lýsti í morgun eftir Modestas Antanavicius, 46 ára karlmanni. Síðast er vitað um ferðir hans í Borgarnesi laugardaginn 7. janúar. „Þeir sem hafa séð til hans eða vita hvar hann kann að vera niðurkominn eru beðnir að láta lögregluna á Vesturlandi vita í síma 444-0300 eða setja sig í samband við Neyðarlínuna…Lesa meira