Fréttir

true

Kristín kjörin Íþróttamaður Akraness þriðja árið í röð 

Kraftlyftingakonan Kristín Þórhallsdóttir var í kvöld kjörin Íþróttamaður Akraness árið 2022 en úrslitin voru kunngjörð í Frístundamiðstöðinni á Garðavöllum. Í öðru sæti í kjörinu var sundmaðurinn Einar Margeir Ágústsson og kylfingurinn Björn Viktor Viktorsson í þriðja sæti. Alls voru þrettán einstaklingar úr tólf íþróttagreinum tilnefndir að þessu sinni en það eru Íþróttabandalag Akraness og Akraneskaupstaður…Lesa meira

true

Árið var um margt eftirminnilegt

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, segir árið 2022 hafa verið um margt eftirminnilegt. „Sú staðreynd að við fengum frelsið okkar aftur eftir að hafa verið í COVID-19 glímu síðustu tvö ár er að mínu matið það jákvæðasta við liðið ár. Eðlileg samskipti og samvera fólks er nærandi og okkur öllum mikilvæg. Þó við gerum okkur grein…Lesa meira

true

„Skorradalurinn mun blómstra sem aldrei fyrr“

Jón Eiríkur Einarsson, oddviti Skorradalshrepps, segir einkum þrennt standa upp úr á liðnu ári. „Í fyrsta lagi að vera kosinn í sveitarstjórn og vera með því treyst fyrir því að reka sveitarfélagið ásamt fjórum öðrum góðum sveitungum mínum. Í öðru lagi að taka við starfi oddvita sem hefur verið bæði skemmtilegt og krefjandi. Og í…Lesa meira

true

Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng í næstu viku

Unnið verður við þrif og almennt viðhald í Hvalfjarðargöngum aðfararnætur þriðjudagsins 10. og miðvikudagsins 11. janúar. „Vinna stendur yfir frá miðnætti og til kl. 6:30 og verður fylgdarakstur í gegnum göngin meðan unnið er. Brýnt er að benda á að meðan á þvotti stendur er mjög hált í göngunum og vegfarendur því beðnir um að…Lesa meira

true

Flóttafólk á vegum Hafnarfjarðarbæjar sent á Akranes

Frá því í apríl á síðasta ári hefur flóttafólki og hælisleitendum tekið að fjölga til muna hér á landi, einkum í kjölfar stríðsins í Úkraínu. Árið reyndist það langstærsta í móttöku flóttafólks. Á Akranes kom fyrsta flóttafólkið frá Úkraínu 29. apríl í fyrravor. Á síðasta ári öllu fluttu alls 80 einstaklingar í bæjarfélagið, þar af…Lesa meira

true

Aukin aðsókn í Safnahús Borgarfjarðar á milli ára

Alls var fjölgun um ríflega tólf hundruð gesti á milli áranna 2021 og 2022 í Safnahús Borgarfjarðar í Borgarnesi. Um var að ræða einstaklinga sem áttu erindi inn á safnið ýmist til þess að glugga í blöð, fá lánaðar bækur og tölvuaðgang eða nýta lærdómsaðstöðuna. Viðburðir voru einnig vel sóttir á árinu sem var að…Lesa meira

true

„Höldum áfram að skapa eftirsóknarvert umhverfi“

Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri sameinaðs sveitarfélags Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar segir liðið ár hafa verið viðburðurðaríkt í starfsemi sveitarfélagsins Stykkishólmsbæjar og Helgafellsveitar. „Það er óhætt að segja að það sem hæst bar á árinu í starfsemi sveitarfélagsins var stofnun þess með sameiningu Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar en í upphafi árs lagði samstarfsnefnd um sameininguna fram álit sitt…Lesa meira

true

Skorradalur er útsvarsparadís Vesturlands

Á þessu ári mun 51 sveitarfélag, af 64 í landinu, leggja á hámarksútsvar, sem nú er 14,52%. Tvö sveitarfélög hafa útsvarshlutfall sitt í lögbundnu lágmarki. Það eru Skorradalshreppur og Fljótsdalshreppur þar sem skattgreiðendur munu greiða 12,44% í útsvar. Hér á Vesturlandi eru nú níu sveitarfélög eftir að Helgafellssveit og Stykkishólmsbær sameinuðust. Sjö þeirra munu innheimta…Lesa meira

true

Tími uppbyggingar

Árný Huld Haraldsdóttir, oddviti Reykhólahrepps, segir það standa upp úr á árinu 2022 að sveitarfélagið gerði leikskólann gjaldfrjálsan. „Sveitarstjórnin tók stórt skref þegar hún gerði leikskólann gjaldfrjálsan í ársbyrjun með því að viðurkenna hann sem fyrsta skólastigið. Það var einnig frábært þegar nýuppgerður leikskólavöllur var opnaður við Reykhólaskóla í sumar, þótt eigi eftir að klára…Lesa meira

true

Veittu styrki vegna bæjarhátíða

Á fundi atvinnu,- markaðs,- og menningarmálanefndar í Borgarbyggð síðastliðinn þriðjudag voru teknar fyrir umsóknir um samstarfssamninga vegna hátíða sem fara fram í Borgarbyggð á árinu. Alls fengu fjórar bæjarhátíðir styrk að upphæð fjögur hundruð þúsund krónur en einni umsókn var hafnað. Þau sem fengu styrk voru Hollvinasamtök Borgarness vegna Brákarhátíðar, Hollvinafélag Varmalands vegna Varmalandsdaga, Íbúasamtök…Lesa meira