Fréttir

true

Vilja kanna samstarf slökkviliðs og lögreglu í húsnæðismálum

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í dag að óska eftir viðræðum við forsvarsmenn Lögreglunnar á Vesturlandi og Framkvæmdasýsluna – Ríkiseignir (FSRE) um samstarf í húsnæðismálum í Borgarnesi. „Að mati byggðarráðs Borgarbyggðar er full ástæða til að kanna grundvöll þess að reisa nýtt húsnæði, kaupa húsnæði eða leigja húsnæði, sem hýst gæti bæði starfsemi slökkviliðs…Lesa meira

true

Tækifærin eru til staðar í Dalabyggð

Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri Dalabyggðar, segir árið 2022 hafa verið viðburðaríkt á margan hátt, bæði hvað varðar mannlíf í Dölum og rekstur Dalabyggðar en ekki síður var árið viðburðarríkt hjá honum sjálfum. „Hvað Dalabyggð varðar þá fann ég fyrir mikilli grósku og metnaði eftir að ég kom til starfa þann 1. ágúst sl. Ný sveitarstjórn…Lesa meira

true

Samstaða í samfélaginu

Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar, segir innrás Rússa í Úkraínu og hörmulegar afleiðingar þess standa upp úr á árinu. Í Grundarfjörð komu á árinu alls 13 manns frá Úkraínu en fjórir þeirra eru farnir aftur. Í Grundarfirði stendur það upp úr að bærinn úthlutaði fjölmörgum byggingarlóðum á árinu og virðist íbúum aftur vera að fjölga eftir…Lesa meira

true

Dalabyggð og UDN undirrita samstarfssamning

Samstarfssamningur milli Dalabyggðar og UDN (Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga) var undirritaður miðvikudaginn 4. janúar. Það voru Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri og Jóhanna Sigrún Árnadóttir, formaður UDN sem undirrituðu samninginn. Í tilkynningu á vef Dalabyggðar segir að markmið samningsins sé m.a. að stuðla að auknu samstarfi milli UDN og Dalabyggðar á sviði íþrótta- og æskulýðsmála. Þannig…Lesa meira

true

Vegskurði lokað til að draga úr slysahættu

Þrátt fyrir kuldatíð síðustu daga hafa verktakar á vegum Vegagerðarinnar unnið við að drena vegskurð þétt við þjóðveginn neðan við Kvíaholt í Borgarnesi. Þarna er verið að leggja dren og verður svo fyllt upp í skurðinn. Í hann hefur safnast vatn með tilheyrandi slysahættu ef bílar lenda þar út af.Lesa meira

true

Boða til kynningarfundar um vindorkuver í landi Brekku

Fyrirtækið Zephyr Iceland hefur uppi áætlanir um að reisa u.þ.b. 50 MW vindorkugarð í landi Brekku í Hvalfjarðarsveit. Zephyr Iceland er norskt að uppruna; norska vindorkufyrirtækið Zephir stofnaði það sem dótturfyrirtæki hér á landi með það að markmiði að reisa vindmyllur og vindmyllugarða í landinu. Í auglýsingu, sem birtist m.a. í Skessuhorni vikunnar og Morgunblaðinu…Lesa meira

true

Vinnuslys í Dölum

Vinnuslys var rétt um hádegi í gær í Dölum. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti þangað slasaðan karlmann og lenti með hann við Landspítalann í Reykjavík rétt fyrir klukkan tvö. Slysið bar að með þeim hætti að maðurinn var að sinna viðhaldi vinnuvélar og féll hluti hennar ofan á hann. Maðurinn var með meðvitund þegar hann var sendur…Lesa meira

true

Allt á fullu í snjómokstri

Það var nóg að gera hjá starfsmönnum Þróttar ehf vélaleigu þegar blaðamaður Skessuhorns átti leið hjá á Vesturgötu á Akranesi seinni partinn í gær. Þróttur ehf sér um snjómokstur í bænum og fengu starfsmenn fyrirtækisins leyfi í gær til að koma með vörubíl og moka burt snjó af svæðinu. Hluta af götunni er þá lokaður…Lesa meira

true

Lærdómsríkt, krefjandi og skemmtilegt

Sigurbjörg Ottesen, oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps segir það einna helst standa upp úr á liðnu ári að hafa verið kosin í sveitarstjórn í sveitarstjórnarkosningunum síðastliðið vor. Á fyrsta fundi sveitarstjórnar var hún svo kjörin oddviti hreppsins. „Á sama tíma og þetta nýja starf hefur verið afar lærdómsríkt og krefjandi, þá hefur þetta einnig verið skemmtilegt…Lesa meira

true

Þrettándabrennur verða víða á Vesturlandi

Á Íslandi eru jólin formlega kvödd á þrettánda degi jóla, 6. janúar. Á mörgum stöðum er hefð fyrir þrettándabrennum og hafa nú nokkrar verið auglýstar í landshlutanum næsta föstudag. Þrettándabrennur verða a.m.k. á Akranesi, í Borgarnesi, Stykkishólmi og Grundarfirði. Björgunarfélag Akraness sér um brennu og flugeldasýningu við þyrlupallinn á Jaðarsbökkum en dagskrá hefst kl. 17.…Lesa meira