Starfsmenn Þróttar ehf við snjómokstur. Ljósm. vaks

Allt á fullu í snjómokstri

Það var nóg að gera hjá starfsmönnum Þróttar ehf vélaleigu þegar blaðamaður Skessuhorns átti leið hjá á Vesturgötu á Akranesi seinni partinn í gær. Þróttur ehf sér um snjómokstur í bænum og fengu starfsmenn fyrirtækisins leyfi í gær til að koma með vörubíl og moka burt snjó af svæðinu. Hluta af götunni er þá lokaður til að starfsmenn geti athafnað sig og síðan opnað að nýju þegar því er lokið og svo koll af kolli.

Allt á fullu í snjómokstri - Skessuhorn