
Samstaða í samfélaginu
Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar, segir innrás Rússa í Úkraínu og hörmulegar afleiðingar þess standa upp úr á árinu. Í Grundarfjörð komu á árinu alls 13 manns frá Úkraínu en fjórir þeirra eru farnir aftur. Í Grundarfirði stendur það upp úr að bærinn úthlutaði fjölmörgum byggingarlóðum á árinu og virðist íbúum aftur vera að fjölga eftir niðursveiflu tengda Covid. Úthlutað var lóðum fyrir allt að 20 íbúðir, auk tveggja iðnaðarlóða og í byggingu á liðnu ári voru tíu íbúðir og atvinnuhúsnæði á einni lóð, auk endurbóta á eldri húsum.“ Hörmulegt banaslys við Kirkjufell í október setti líka svip sinn á árið og segir Björg frægð Kirkjufells fela í sér stóra áskorun fyrir landeigendur og samfélagið en líka tækifæri sem vinna þurfi rétt úr.