Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tók í ágúst við mótmælum 1709 einstaklinga sem lýstu sig andvíga vindmyllugarði á Brekkukambi. Það var Arnfinnur Jónasson sem afhenti sveitarstjórn undirskriftalistana. Ljósm. úr safni/jh.

Boða til kynningarfundar um vindorkuver í landi Brekku

Fyrirtækið Zephyr Iceland hefur uppi áætlanir um að reisa u.þ.b. 50 MW vindorkugarð í landi Brekku í Hvalfjarðarsveit. Zephyr Iceland er norskt að uppruna; norska vindorkufyrirtækið Zephir stofnaði það sem dótturfyrirtæki hér á landi með það að markmiði að reisa vindmyllur og vindmyllugarða í landinu. Í auglýsingu, sem birtist m.a. í Skessuhorni vikunnar og Morgunblaðinu í byrjun árs, eru íbúar og hagsmunaaðilar hvattir til að mæta á kynningarfund sem fyrirtækið hefur boðað til næstkomandi mánudagskvöld um verkefnið. Umsjón með mati á umhverfisáhrifum verkefnisins er í höndum verkfræðistofunnar Eflu. Á fundinum munu fulltrúar Zephyr Iceland og Eflu kynna framkvæmdina og helstu áherslur umhverfismatsins og svara spurningum fundargesta um verkefnið. Fundurinn fer fram mánudagskvöldið 9. janúar í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit og hefst klukkan 20.