
Föstudaginn 4. nóvember fengu 21 verkefni styrk úr frumkvæðissjóði DalaAuðs, við hátíðlega athöfn að Laugum í Sælingsdal. Á nýju ári mun Dalabyggð halda áfram að vinna með verkefnið DalaAuð í samstarfi við Byggðastofnun. Ljósm. gbþ
Tækifærin eru til staðar í Dalabyggð
Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri Dalabyggðar, segir árið 2022 hafa verið viðburðaríkt á margan hátt, bæði hvað varðar mannlíf í Dölum og rekstur Dalabyggðar en ekki síður var árið viðburðarríkt hjá honum sjálfum.