Sigurbjörg Ottesen oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps. Ljósm. Gunnhildur Lind.

Lærdómsríkt, krefjandi og skemmtilegt

Sigurbjörg Ottesen, oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps segir það einna helst standa upp úr á liðnu ári að hafa verið kosin í sveitarstjórn í sveitarstjórnarkosningunum síðastliðið vor. Á fyrsta fundi sveitarstjórnar var hún svo kjörin oddviti hreppsins. „Á sama tíma og þetta nýja starf hefur verið afar lærdómsríkt og krefjandi, þá hefur þetta einnig verið skemmtilegt verkefni að takast á við. Það hefur svo verið algjör bónus að kynnast fjölmörgu fólki í gegnum starfið og tengslanet mitt hefur því stækkað gríðarlega.“