
Skóflustunga fyrir nýju raðhúsi á Reykhólum var tekin í nóvember 2022. Frá vinstri: Indriði Þröstur, Guðmundur, Jóhanna Ösp og Ingibjörg Birna sturta úr skóflunum. Ljósm. reykholar.is
Tími uppbyggingar
Árný Huld Haraldsdóttir, oddviti Reykhólahrepps, segir það standa upp úr á árinu 2022 að sveitarfélagið gerði leikskólann gjaldfrjálsan. „Sveitarstjórnin tók stórt skref þegar hún gerði leikskólann gjaldfrjálsan í ársbyrjun með því að viðurkenna hann sem fyrsta skólastigið. Það var einnig frábært þegar nýuppgerður leikskólavöllur var opnaður við Reykhólaskóla í sumar, þótt eigi eftir að klára að leggja lokahönd á hann,“ segir Árný. Hún nefnir einnig að það séu í gangi miklar endurbætur við Reykhólahöfn en flestir muna eftir því að bryggja hafnarinnar hrundi síðastliðið sumar.