Fréttir

true

Landsvirkjun flytur út þekkingu við gerð vatnsaflsvirkjana

Vatnsaflsstöðin Akhalkalaki í Georgíu, sem Landsvirkjun á hlut í og hefur tekið þátt í að reisa, verður vígð við hátíðlega athöfn á morgun. Uppsett afl stöðvarinnar er tæplega 10 MW og mun hún vinna um 50 GWst af endurnýjanlegri raforku árlega. Hluti af verkefninu var einnig uppbygging á tengdum innviðum í nærsamfélagi stöðvarinnar, svo sem…Lesa meira

true

Borgarnes dagatalið 2023 er komið út

Þorleifur Geirsson í Borgarnesi hefur nú gefið út Borgarnesdagatalið 2023. Þetta er þrettándi árgangur. Veggdagatalið prýðir þrettán myndir úr Borgarnesi, teknar í öllum tólf mánuðum ársins. Hægt er að sjá myndirnar á dagatalinu og fá nánari upplýsingar á vefslóðinni: www.hvitatravel.is/dagatal Dagatalið fæst einnig í smásölu á Olís í Borgarnesi.Lesa meira

true

Borgarnes komið í hóp bæja með 5G háhraðanet

Nova hefur nú sett upp 5G sendi í Borgarnesi og býður íbúum upp á áður óþekktan nethraða á svæðinu. „Þar með bætist Borgarnes í hóp þeirra 45 bæjarfélaga sem hafa aðgang að 5G, en Nova hefur undanfarin ár komið upp yfir 90 sendum í öllum landshlutum. Óhætt er að fullyrða að Nova hafi verið leiðandi…Lesa meira

true

Veisla fyrir bókaorma

Bókamessa verður haldin að Háaleitisbraut 66 í Reykjavík, í safnaðarheimili Grensáskirkju í Reykjavík, á morgun, laugardaginn 5. nóvember frá kl. 12-18. Þar verða bæði splunkunýjar jólabækur og margskonar rarítet fyrri ára á kjarapöllum. Alls verða 12 nýjar bækur kynntar með upplestri en auk þess kemur valkyrjuhópurinn Kvæðakonan góða fram og kynnir væntanlega endurútgáfu á Íslenskri matarhefð…Lesa meira

true

MB fær viðurkenningu fyrir framsækna endurskoðun námskrár

Upplýst var í kvöld að Menntaskóli Borgarfjarðar í Borgarnesi hlaut hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna fyrir framsækna endurskoðun á námskrá skólans. Það var Gerður Kristný rithöfundur sem afhenti fulltrúum skólans verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Með Braga Þór Svavarssyni skólameistara voru í för þau Lilja S. Ólafsdóttir aðstoðarskólameistari, Signý Óskarsdóttir verkefnastjóri skólaþróunar, Helgi Haukur…Lesa meira

true

Elstu börnin á Vallarseli syngja Ávaxtakörfuna – MYNDBÖND

Elstu börnin á leikskólanum Vallarseli á Akranesi héldu klukkan 14 í dag tónleika í Tónbergi á Akranesi. Þar fluttu börnin lög úr Ávaxtakörfunni. Tónleikarnir voru vel sóttir og stóðu allir sig reglulega vel. Þá voru blásturshljóðfærin dregin upp í flutningi lagsins Immi best.Lesa meira

true

Nýr vefur að líta dagsins ljós

Í þessari viku hefur verið unnið að uppfærslu vefjar Skessuhorns. Útlit hans er að mestu það sama og verður svo fyrst um sinn. Vefurinn hefur nú verið færður í annað umsjónarkerfi og unnið við ýmsa forritun. Meðal annars ættu lesendur að finna hraðari vef þegar flakkað er milli síðna. Nú þurfum við að biðja góða…Lesa meira

true

Hrekkjavökuganga í Stykkishólmi

Vetrarfrí var í grunnskólanum í Stykkishólmi síðastliðinn mánudag þegar hrekkjavaka var haldin um nær allan heim og var því ákveðið að fresta henni í Stykkishólmi þar sem mörg börn voru ekki heima. Miðvikudaginn 2. nóvember stóð foreldrafélag Grunnskólans svo fyrir hrekkjavökugöngu í samstarfi við ungmenni í félagsmiðstöðinni og Norska húsið en því hafði einmitt verið…Lesa meira

true

Ensku húsin skipta um eigendur

Margir kannast við Ensku húsin sem standa við Langá á Mýrum um 7 kílómetra vestur af Borgarnesi. Síðastliðin sextíu ár hafa þau verið í eigu fjölskyldu Ragnheiðar G. Jóhannesdóttur og eiginmanns hennar Stefáns Ólafssonar á Litlu-Brekku. En nú hefur orðið breyting á því og Eyja fjárfestingarfélag, sem er í eigu Birgis Þórs Bieltvedt og Eyglóar…Lesa meira

true

Arnór Smárason skrifar undir tveggja ára samning við ÍA

Knattspyrnumaðurinn Arnór Smárason hefur ákveðið að ganga til liðs við Skagamenn en Arnór kemur til ÍA frá Val þar sem hann hefur spilað undanfarin tvö tímabil. Arnór er uppalinn hjá ÍA en lék aldrei með meistaraflokki ÍA á yngri árum og mun því loksins leika með uppeldisfélaginu en hann er 34 ára gamall. ÍA féll…Lesa meira