Fréttir

true

Lokadagurinn á sölu Neyðarkallsins

Í dag er síðasti dagurinn sem sala Neyðarkalls björgunarsveitanna stendur yfir. Að venju er hér um eina af mikilvægustu fjáröflunum björgunarsveita landsins að ræða. Að sögn þeirra björgunarsveitarmanna sem Skessuhorn hefur rætt við hafa viðtökur almennings verið mjög jákvæðar. Á myndinni er Jakob Guðmundsson stjórnarmaður í Brák í Borgarnesi að selja kallinn í anddyri Hyrnutorgs…Lesa meira

true

Bjarni sigurvegari formannskosningar

Nú rétt í þessu var lýst kjöri í kosningu um formann Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins sem haldinn er í Laugardalshöllinni. Alls kusu 1.712 og voru gild atkvæði 1.700. Bjarni Benediktsson hlaut góða kosningu; 1.010 atkvæða eða 59,4% greiddra atkvæða. Guðlaugur Þór Þórðarson fékk 687 atkvæði eða 40,4%. Aðrir fengu 3 atkvæði. Bjarni hélt í kjölfarið…Lesa meira

true

Vökudagar renna sitt skeið í dag

Lista- og menningarhátíðin Vökudagar hefur staðið yfir á Akranesi frá 27. október en lýkur í kvöld þegar opið verður á síðustu viðburðina sem tengjast hátíðinni (sjá skagalif.is). Óhætt er að segja að dagskráin hafi verið fjölbreytt og margir viðburðir í gangi. Meðfylgjandi mynd var tekin í gær þegar Kirkjukór Akraneskirkju flutti Sálumessu eftir Gabriel Fauré…Lesa meira

true

Kosið um forystu í Sjálfstæðisflokknum

Eins og vart hefur farið framhjá neinum hefur landsfundur Sjálfstæðisflokksins staðið yfir frá föstudegi í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Fundinum lýkur í dag með kosningu í trúnaðarstöður innan flokksins. Byrjað verður að kjósa um formann, en tveir eru í kjöri; Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður flokksins til þrettán ára og Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður og ráðherra.…Lesa meira

true

,,Tónlistin er alltaf í fyrsta sæti“

Tónlistarkonan Soffía Björg byrjaði að syngja um tvítugt en hefur nú skapað sér nafn víða  í tónlistarheiminum. Frá bænum Einarsnesi í Borgarfirði kemur stór systkinahópur en öll búa þau yfir náðargáfu tónlistarinnar. Soffía Bjög Óðinsdóttir er ein þessara átta systkina en hún starfar í dag sem tónlistarkona. Soffía hefur komið fram á tónlistahátíðum víða um…Lesa meira

true

DalaAuður úthlutar styrkjum til 21 verkefnis

Í dag fengu 21 verkefni styrk úr frumkvæðissjóði DalaAuðs, við hátíðlega athöfn að Laugum í Sælingsdal. Þetta var fyrsta úthlutun úr sjóðnum og var heildarupphæð styrkjanna 12.250.000.- kr en lagt er upp með að úthlutað verði styrkjum úr sjóðnum árlega næstu ár, á meðan verkefnið DalaAuður er í gangi. Af þeim 30 umsóknum sem bárust…Lesa meira

true

Krefjast yfir 100 milljóna í bætur vegna lokunar í Brákarey

Á fundi Byggðarráðs Borgarbyggðar sem var haldinn var í gær 3. nóvember var lögð fram krafa frá Fornbílafjelagi Borgarfjarðar vegna lokunar á húsnæði félagsins í Brákarey snemma á síðasta ári. Í kröfunni má finna útreikning sem var unnin fyrir og af stjórn Fornbílafjelags Borgarfjarðar vegna þess tjóns sem riftun leigusamnings Borgarbyggðar við Fornbílafjelagið hafi og…Lesa meira

true

Hrekkjavakan er að festa sig í sessi

Hrekkjavakan á alþjóðavísu var síðastliðinn mánudag með tilheyrandi búningum og skemmtun, einkum meðal yngri kynslóðarinnar. Einhverjir skólar og bæjarfélög frestuðu þó hátíðinni og til að mynda var haldið upp á daginn í Stykkishólmi á miðvikudaginn. Á meðfylgjandi mynd er hluti nemenda fimmta bekkjar Grundaskóla á Akranesi, en þar mættu allflestir í alls kyns gervum og…Lesa meira

true

Sala Neyðarkallsins er hafin

Nú er Neyðarkallasala björgunarsveita Landsbjargar hafin um land allt. Neyðarkallinn, sem að þessu sinni er björgunarsveitarkona, stendur yfir dagana 3. – 6. nóvember. Kippan er seld á 3.000 krónur. Salan er ein af megin fjáröflunarleiðum björgunarsveitanna til að standa straum af starfi sínu og eru landsmenn hvattir til að leggja málefninu lið.Lesa meira

true

Fjör á Skammhlaupi í FVA

Skammhlaup 2022 í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi fór fram í gær. Það var nú haldið í annað sinn á þessu ári en því hafði áður verið frestað síðustu tvö ár vegna faraldursins. Skammhlaupið var fyrst haldið árið 1999 og megintilgangurinn alltaf verið sá að brjóta upp kennsluna í skólanum og hafa smá fjör og gaman…Lesa meira