Fréttir

true

Tónleikar framundan á Landnámssetrinu

Soffía Björg Óðinsdóttir tónlistarkona heldur tónleika í Borgarnesi næstkomandi föstudag en nokkur ár eru síðan hún kom síðast fram í sinni heimabyggð. Tónleikarnir verða í Arinstofu Landnámssetursins föstudaginn 11. nóvember og hefjast klukkan 20:30. ,,Ég held ég hafi ekki sungið hérna opinberlega í Borgarfirðinum síðan árið 2017 eða 2018. Það er öðruvísi að koma fram…Lesa meira

true

Dregið í 8 liða úrslit í VÍS bikarnum í körfunni

Í hádeginu í dag var dregið í átta liða úrslit VÍS bikars karla og kvenna í körfuknattleik en Helgi Bjarnason forstjóri VÍS og Craig Pedersen landsliðsþjálfari karla sáu um að draga rauðu kúlurnar upp úr skálinni að þessu sinni. Tvö Vesturlandslið voru í pottinum, kvennalið Snæfells dróst á móti úrvalsdeildarliði Fjölnis og karlalið Skallagríms mætir…Lesa meira

true

Kynjahlutfall í nefndum, stjórnum og ráðum Hvalfjarðarsveitar

Fjölskyldu- og frístundanefnd Hvalfjarðarsveitar fundaði 3. nóvember sl. en nefndin hefur m.a. það hlutverk að kanna árlega kynjahlutfall í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum Hvalfjarðarsveitar.  Í fundargerð segir að við skipan í stjórnir, ráð og nefndir á vegum sveitarfélagsins skal hlutfall kynjanna vera sem jafnast og ekki undir 40% kynjahalli. Í ár voru kynjahlutföllin…Lesa meira

true

Umferð á hringveginum jókst um 1,9% í október

Umferðin í nýliðnum október jókst um 1,9% miðað við sama mánuð á síðasta ári skv. upplýsingum á vef Vegagerðarinnar. Umferðin jókst á öllum landssvæðum en mest um Austurland, um rúm 8%, og minnst við höfuðborgarsvæðið, tæpt 1%, miðað við október í fyrra. Nú stefnir í að 2022 verði umferðarmesta árið á Hringveginum hingað til en…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu á móti Hrunamönnum

ÍA og Hrunamenn mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram á Skipaskaga. Gestirnir byrjuðu af miklum krafti í leiknum á meðan heimamenn voru alveg meðvitundarlausir, staðan 2:18 Hrunamönnum í vil eftir fimm mínútna leik. Skagamönnum gekk illa að minnka muninn en Gabriel Adersteg setti niður síðustu sex stigin í…Lesa meira

true

Bendir á að lítið sé að gert til að koma skepnunum til hjálpar

Allt frá því í sumar hefur Steinunn Árnadóttir í Borgarnesi fylgst grannt með líðan og aðbúnaði hrossa í hesthúsahverfi í Borgarnesi auk nautgripa og kinda á bæ í Borgarfirði, en allar þessar skepnur tilheyra sömu umráðaaðilum. Málinu hefur hún fylgt fast eftir við embættismenn sem framfylgja skulu lögum um dýravelferð berist ábendingar um að eitthvað…Lesa meira

true

Tilnefningar um konur sem skara framúr í atvinnulífinu

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar fyrir Viðurkenningarhátíð Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) 2023. „Hvaða þrjár konur verða heiðraðar og valdar úr hópi tilnefndra kvenna kemur í ljós á næstu FKA Viðurkenningarhátíð FKA á Grand Hótel 26. janúar 2023. Þá mun koma í ljós hvaða konur hljóta FKA viðurkenninguna, FKA þakkarviðurkenninguna og FKA hvatningarviðurkenninguna 2023. Félag…Lesa meira

true

Barna- og ungmennaþing á Akranesi

Dagana 2. og 3. nóvember var haldið barna- og ungmennaþing á Akranesi. Þingið er hluti af innleiðingu verkefnisins Barnvænt sveitarfélag sem Akraneskaupstaður vinnur að í samstarfi við UNICEF á Íslandi. Einnig er þingið hluti af undirbúningi ungmennaráðs fyrir bæjarstjórnarfund unga fólksins, en yfirskrift þingsins var: „Barnvænt Akranes“. Barna- og ungmennaþingið fór fram í frístundamiðstöðinni Þorpinu…Lesa meira

true

Útgáfuteiti með knattspyrnusögunni

Næstkomandi fimmtudag klukkan 17 verður haldið útgáfuteiti í Byggðasafninu í Görðum á Akranesi vegna útgáfu bókarinnar Knattspyrnubærinn – 100 ára knattspyrnusaga Akraness, eftir Björn Þór Björnsson. Þar verður bókin kynnt og seld á tilboðsverði sem verður 7.500 krónur. „Að sjálfsögðu eru allir velkomnir og það væri vitanlega gaman að sjá þar sem flesta,“ segir í…Lesa meira