Fréttir

true

Ostar frá MS í Búðardal unnu til alþjóðlegra verðlauna

Ostar sem framleiddir eru á starfsstöð Mjólkursamsölunnar í Búðardal tóku þátt í alþjóðlegri matvælakeppni sem fram fór í Herning í Danmörku um liðna helgi. Nítján ostar voru sendir til keppni í sjö flokkum. Garðar Freyr Vilhjálmsson, framleiðslustjóri MS í Búðardal, segir vörurnar almennt hafa fengið góða dóma. Nokkrir ostar unnu til verðlauna. ,,Þetta er alþjóðleg…Lesa meira

true

Klakkur fjárfesti í flygildi

Björgunarsveitin Klakkur í Grundarfirði keypti á dögunum DJI Matrice 30T dróna til viðbótar við tækjakost sveitarinnar. Dróninn er afar fullkominn og hentar vel til leitar. Hann er búinn öflugri myndavél með miklum aðdrætti sem og hitamyndavél sem gegnir lykilhlutverki við leitarstörf. Ljóst er að þetta tæki á eftir að nýtast vel fyrir björgunarsveitirnar á Snæfellsnesi…Lesa meira

true

Íbúafjöldi á Akranesi að nálgast átta þúsund

Íbúar á Vesturlandi voru 17.462 talsins þriðjudaginn 1. nóvember síðastliðinn. Á ellefu mánaða tímabili frá 1. desember 2021 og til 1. nóvember sl. hefur fjölgað í öllum sveitarfélögum á Vesturlandi, utan Dalabyggðar þar sem fækkar um fjóra á tímabilinu, eða um 0,6%. Athygli vekur að nú vantar einungis 52 upp á íbúafjöldann á Akranesi nái…Lesa meira

true

Bráðaþjónusta efld um allt land með bættum tækjabúnaði

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita heilbrigðisstofnunum utan höfuðborgarsvæðisins 113,5 milljónir króna til kaupa á tækjabúnaði sem styrkir bráðaþjónustu um allt land. Ákvörðunin er byggð á tillögu viðbragðsteymis um bráðaþjónustu. Markmiðið er að auka getu heilbrigðisstofnana til að veita bráðaþjónustu og stuðla að jafnara aðgengi að þjónustunni á landsvísu. Viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í landinu hefur undanfarið…Lesa meira

true

Trommað gegn einelti í Brekkubæjarskóla

Eftir hádegi í dag tóku nemendur Brekkubæjarskóla á Akranesi sig til og trommuðu í takt á skólalóðinni. Tilefnið var Dagur gegn einelti og trommuðu krakkarnir í alls sjö mínútur, eina mínútu fyrir hvern dag vikunnar sem þau vilja hafa eineltislausan. Þá var einnig myndaður regnbogi af nemendum í litum regnbogans til þess að tákna fjölbreytileikann…Lesa meira

true

Stofnuð hafa verið Samtök þörungafélaga

„Ísland á mikla möguleika á að verða leiðandi í nýsköpun og framþróun ræktunar og framleiðslu afurða úr þörungum ef rétt er haldið á spöðunum,“ segir í tilkynningu frá nýstofnuðum Samtökum þörungafélaga á Íslandi (e. Algae Association of Iceland, AAI). Fyrsti fyrsti stjórnarfundur hinna nýstofnuðu samtaka fór fram síðastliðinn fimmtudag. Stofnendur félagsins eiga það sameiginlegt að…Lesa meira

true

Skallagrímur með tap gegn Álftanesi

Álftanes og Skallagrímur áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn á slóðum forseta vors. Jafnt var á flestum tölum fyrstu mínútur leiksins en síðan tóku Skallagrímsmenn kipp og voru komnir með tíu stiga forystu eftir tæpar fimm mínútur í fyrsta leikhluta. Heimamenn náðu síðan að koma til baka og…Lesa meira

true

Uppganga á Kirkjufell bönnuð fram yfir varptíma næsta vor

Landeigendur Kirkjufells við Grundarfjörð komu saman til fundar á laugardaginn, ásamt bæjarstjóra og skipulagsfulltrúa Grundarfjarðarbæjar, fulltrúum viðbragðsaðila og Ferðamálastofu. Jarðirnar sem eiga land að fjallinu eru Kirkjufell, Háls og Búðir. Sendu þeir í kjölfarið frá sér yfirlýsingu. Til fundarins var boðað vegna tíðra og alvarlegra slysa í fjallinu, en þar hafa þrír látist á undanförnum…Lesa meira

true

Frumvarp um sorgarleyfi

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um sorgarleyfi. Í því felst að einstaklingar sem misst hafa maka og eru foreldrar barna yngri en 18 ára fái heimild til að taka allt að sex mánaða leyfi frá störfum og fái greiðslur frá Vinnumálastofnun á meðan. Í tilkynningu frá Viðreisn kemur fram…Lesa meira

true

Styrktartónleikar fyrir Minningarsjóð Heimis

Styrktartónleikar fyrir Minningarsjóð Heimis Klemenzsonar verða haldnir í Reykholtskirkju í Borgarfirði sunnudaginn 13. nóvember klukkan 15. Fyrsta og eina úthlutun sjóðsins fór fram í desember 2020 og voru það þær Anna Þórhildur Gunnarsdóttir píanóleikari, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir söngkona og Steinunn Þorvaldsdóttir söngkona sem hlutu þá styrk úr sjóðnum. Standa þær nú fyrir fyrirhuguðum styrktartónleikum en…Lesa meira