Hross með hófsperru. Ljósm. sá.

Bendir á að lítið sé að gert til að koma skepnunum til hjálpar

Allt frá því í sumar hefur Steinunn Árnadóttir í Borgarnesi fylgst grannt með líðan og aðbúnaði hrossa í hesthúsahverfi í Borgarnesi auk nautgripa og kinda á bæ í Borgarfirði, en allar þessar skepnur tilheyra sömu umráðaaðilum. Málinu hefur hún fylgt fast eftir við embættismenn sem framfylgja skulu lögum um dýravelferð berist ábendingar um að eitthvað sé ábótavant hjá dýrum. Hrossunum í Borgarnesi var eins og kunnugt er hleypt út síðsumars og hafa að undanförnu verið á þröngum haga í skjólleysi. Fargað var hluta hópsins í haust, þeim hluta sem var í hvað verstu ástandi. Þá búa nautgripir við þröngan kost og má glöggt sjá af ljósmyndum sem Steinunn tók um helgina að þeir eru illa haldnir. Sunnudaginn 6. nóvember sendir Steinunn sex ljósmyndir af skepnunum sem sýna meðal annars hross með hófsperru og grindhoraðan nautgrip. Tölvupósturinn er opið bréf og m.a. stílaður á sveitarstjórnarfulltrúa í Borgarbyggð, eftirlitsaðila hjá Matvælastofnun, fjölmiðlafólk, forsætisráðherra og fleiri.

Bendir á að lítið sé að gert til að koma skepnunum til hjálpar - Skessuhorn