Fréttir

true

Haustið nýtt til útiveru

Þessir kátu leikskólakrakkar hafa verið að nýta haustið til útiveru þegar veðrið hefur boðið upp á slíkt. Hérna eru elstu krakkarnir á leikskólanum á leið upp á Eldhamra í Grundarfirði þar sem þeir munu byrja næsta haust. Eldhamrar er elsta leikskólastigið áður en börnin hefja nám í Grunnskóla Grundarfjarðar.  Lesa meira

true

Sjá fyrir sér 800 manna samfélag á Reykhólum

Ungmennráð Reykhólahrepps fundaði 6. október. Á fundinum var fjárhagsáætlun Reykhólahrepps tekin fyrir og lagðar fram tillögur til sveitarstjórnar. T.a.m. segir í fundargerð að Ungmennaráð leggi til við sveitarstjórnina að gera ráð fyrir fjármagni í íþróttasvæði í fjárhagsáætlun næsta árs. Þar þurfi að laga svæði undir frjálsar íþróttir, laga fótboltavöllinn og klára stúkuna við völlinn. Þá…Lesa meira

true

Aukin stafræn miðlun framundan á Skessuhorni

Vefurinn skessuhorn.is fer brátt bak við greiðsluvegg Skessuhorn hefur verið héraðsfréttamiðill Vesturlands í rétt tæpan aldarfjórðung. Nú eru breyttir tímar í umhverfi fjölmiðla hvað varðar öflun tekna, einkum af sölu auglýsinga sem hafa að hluta til færst annað. Skessuhorni, sem og öðrum fjölmiðlum, er nauðsynlegt að bregðast við þeirri stöðu og leita nýrra leiða til…Lesa meira

true

Ný úttekt gefur dökka mynd af stöðu slökkviliða í landinu

Brunavarnasvið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar gaf nýverið út skýrslu um stöðu slökkviliða í landinu. Byggir hún á viðamikilli úttekt á starfsemi slökkviliða sem gerð var árið 2021. Fram kemur að ekki eru öll sveitarfélög hér á landi með slökkvilið sem er þannig skipulagt, mannað, menntað og þjálfað að það geti leyst af hendi með fullnægjandi hætti…Lesa meira

true

Ný hugsun um hvernig hægt sé að flýta endurbyggingu vega

Haraldur Benediktsson, annar þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norð-Vestur kjördæmi hefur í nokkurn tíma unnið að heldur nýstárlegri hugmynd í vegagerð undir yfirskriftinni „Samfélagsvegir – ný hugsun í vegagerð.” Hann frumsýndi þessa vinnu sína á opnum fundi í félagsheimilinu Hvammstanga í Húnaþingi vestra, 4. október s.l. Skessuhorn átti ekki heimangengt á fundinn en heimsótti Harald fyrir helgi…Lesa meira

true

Snæfell með tvo sterka sigra í vikunni

Snæfell lék tvo leiki í liðinni viku í 1. deild kvenna í körfuknattleik og var sá fyrri heimaleikur á móti Þór Akureyri. Snæfell hafði þar sigur í jöfnum og spennandi leik, lokatölur 63:57 fyrir Snæfell. Tindastóll og Snæfell áttust síðan við á mánudagskvöldið og fór leikurinn fram í Síkinu á Sauðárkróki. Leikurinn hófst á fjörugum…Lesa meira

true

Spennandi verkefni á næsta ári í Borgarbyggð

Á fundi atvinnu, markaðs- og menningarmálanefndar Borgarbyggðar 4. október síðastliðinn voru lögð fram drög af starfs- og fjárhagsáætlun nefndarinnar fyrir árið 2023. Þar með talið fjárhagsáætlun fyrir hátíðarhöld, Menningarsjóð Borgarbyggðar, Safnahús Borgarfjarðar, Hjálmaklett og félagsheimilin í sveitarfélaginu. Í fundargerð kemur fram að starfsáætlunin fyrir málaflokka nefndarinnar árið 2023 innihaldi spennandi, metnaðarfull og flott verkefni. „Lögð…Lesa meira

true

„Að spila fyrir fólk er lífsnauðsynlegt fyrir mig“

Tónlistarmaðurinn Mugison hefur verið á tónleikaferð um landið undanfarið og var með alls níu tónleika í septembermánuði fyrir austan og norðan. Blaðamaður Skessuhorns heyrði nýverið hljóðið í Mugison, en hann hélt tónleika í Borgarnesi og á Akranesi í vikunni sem leið og var uppselt á þá báða, sem og allflesta tónleika sem hann hefur haldið…Lesa meira

true

Bleikur október á Akranesi hefst í dag

Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélags Íslands tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Bleiki dagurinn er föstudaginn 14. október en þá eru landsmenn hvattir til að sýna lit og bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa upp skammdegið í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning og samstöðu. Bleikur október Krabbameinsfélags…Lesa meira

true

Hafró lokar og starfsmanni boðið að segja sjálfur upp

Starfsmanni Hafrannsóknastofnunar í Ólafsvík (Hafró) hefur borist bréf um að starfsstöðinni þar verði lokað frá og með 1. janúar 2023, vegna uppsagnar á samningi um reksturinn. Fram kemur ennfremur að undirbúningur lokunarinnar sé þegar hafinn. Í bréfinu er tekið fram að af þessum sökum sé starfsmanninum boðið starf á öðrum starfsstöðvum Hafró. Næsta útibú stofnunarinnar…Lesa meira