Frá bleikum viðburði á Akratorgi fyrir nokkrum árum.

Bleikur október á Akranesi hefst í dag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélags Íslands tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Bleiki dagurinn er föstudaginn 14. október en þá eru landsmenn hvattir til að sýna lit og bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa upp skammdegið í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning og samstöðu. Bleikur október Krabbameinsfélags Akraness og nágrennis hefst í dag, miðvikudaginn 12. október klukkan 20, með bleikri göngu frá Krónuplani að Akratorgi þar sem Slaufuberi 2022 verður kynntur. Að sögn Liv Åse Skarstad formanns Krabbameinsfélags Akraness og nágrennis er gangan ætluð til að vekja fólk til umhugsunar um krabbamein í konum og hvetja fólk til samstöðu. Á fimmtudaginn er bleikt sund frá klukkan 19.30 til 21 í Jaðarsbakkalaug þar sem boðið er upp á tónlist og veitingar og þá er sundlaugin lýst upp með bleikum ljósum. Bleiki dagurinn er síðan á föstudaginn og hvetur Liv Åse alla til að kaupa Bleiku slaufuna, klæðast bleiku, kaupa bleika köku og mæta í vinnuna í bleiku. Hún segir að vinnustaðir hafi verið mjög duglegir að hafa átak hjá sér á þessum degi og það verið mjög gefandi og skemmtilegt.\r\n\r\nSeinna í mánuðinum, sunnudaginn 23. október, verður bleik messa í Akraneskirkju klukkan 20 og segir Liv Åse að í fyrra hafi kirkjan verið alveg troðfull og býst við að mætingin verði jafngóð í ár. Bleikum október lýkur svo sunnudaginn 30. október í Bíóhöllinni á Akranesi með styrktarsýningu þar sem sýnd verður stórmyndin Ticket to Paradise með Juliu Roberts og George Clooney í aðalhlutverki.\r\n\r\nLiv Åse segir að lokum að hún vilji koma því á framfæri að í fyrra hafi þau verið mjög heppin með stuðning frá fyrirtækjum og einstaklingum í bænum. „Kallabakarí var með bleikar bollakökur til sölu, Frystihúsið var með drykkinn Hrefnu í samstarfi við Hrefnu Dan, Tinna í Dótarí var með bleikar vörur til sölu, Andrea Björnsdóttir seldi sælgæti og rann ágóðinn af þessu öllu saman til félagsins. Í vetur hefur félagið verið með Jóga hjá Báru Jósefs og styrktarþjálfun einu sinni í viku fyrir krabbameinsgreinda. Þessu hefur verið tekið alveg rosalega vel og allir mjög ánægðir með það. Þetta gætum við ekki gert nema með velvild fyrirtækja og einstaklinga á Akranesi.“",
  "innerBlocks": []
}
Bleikur október á Akranesi hefst í dag - Skessuhorn