Fyrirliðinn Rebekka Rán átti góðan leik á móti Tindastól. Ljósm. sá.

Snæfell með tvo sterka sigra í vikunni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Snæfell lék tvo leiki í liðinni viku í 1. deild kvenna í körfuknattleik og var sá fyrri heimaleikur á móti Þór Akureyri. Snæfell hafði þar sigur í jöfnum og spennandi leik, lokatölur 63:57 fyrir Snæfell. Tindastóll og Snæfell áttust síðan við á mánudagskvöldið og fór leikurinn fram í Síkinu á Sauðárkróki. Leikurinn hófst á fjörugum nótum en fljótlega náðu gestirnir yfirhöndinni og voru með ellefu stiga forystu eftir fyrsta leikhluta, 12:23. Leikmönnum Tindastóls gekk illa að ráða við erlenda leikmenn Snæfells auk þess sem Rebekka Rán Karlsdóttir var að gera vel í að stjórna sóknarleik gestanna. Annar leikhlutinn fer ekki í sögubækurnar því hittnin hjá báðum liðum var afleit og mikið um tapaða bolta. Snæfell vann leikhlutann 7:9 og staðan 19:32 í hálfleik.\r\n\r\nTindastólskonur komu ákveðnar inn í þriðja leikhluta og náðu að minnka muninn. Þar munaði mestu um framlag Chloe Rae Wanink sem skoraði 14 af 18 stigum Tindastóls í leikhlutanum. Hinu megin var Cheah Rael Whitsitt ansi öflug og sá til þess að heimakonur ógnuðu ekki forskoti gestanna. Heimakonur komu síðan með mikill ákefð inn í fjórða leikhlutann og náðu að minnka muninn í átta stig með þriggja stiga körfu frá Chloe Rae eftir rúmlega tveggja mínútna leik. Þær náðu þó ekki að fylgja þessu áhlaupi eftir og Snæfell bætti aftur í. Rebekka Rán slökkti vonir Tindastóls þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir af leiknum með nettum þristi og kom þeim 15 stigum yfir. Snæfell lauk leiknum með 2:11 kafla og lokatölur öruggur sigur Snæfells, 51:75.\r\n\r\nStigahæstar hjá Snæfelli voru þær Cheah Rael Whitsitt sem var með 30 stig og 20 fráköst, Preslava Koleva var með 17 stig og 13 fráköst og Rebekka Rán með 16 stig. Chloe Rae Wanink var stigahæst hjá Tindastóli með 33 stig, Emese Vida var með 10 stig og 19 fráköst og Eva Rún Dagsdóttir með sex stig.\r\n\r\nNæsti leikur Snæfells er í dag gegn Ármanni í Stykkishólmi og hefst klukkan 19.15.\r\n\r\n ",
  "innerBlocks": []
}
Snæfell með tvo sterka sigra í vikunni - Skessuhorn