Félagsheimilið Lyngbrekka í Álftaneshreppi.

Spennandi verkefni á næsta ári í Borgarbyggð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fundi atvinnu, markaðs- og menningarmálanefndar Borgarbyggðar 4. október síðastliðinn voru lögð fram drög af starfs- og fjárhagsáætlun nefndarinnar fyrir árið 2023. Þar með talið fjárhagsáætlun fyrir hátíðarhöld, Menningarsjóð Borgarbyggðar, Safnahús Borgarfjarðar, Hjálmaklett og félagsheimilin í sveitarfélaginu. Í fundargerð kemur fram að starfsáætlunin fyrir málaflokka nefndarinnar árið 2023 innihaldi spennandi, metnaðarfull og flott verkefni.\r\n\r\n„Lögð verður áhersla á stafræna þróun í þjónustuveitingu sveitarfélagsins með því að halda áfram samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og með nýrri heimasíðu sveitarfélagsins, sem verður til þess fallin að auka til muna þjónustustig í upplýsingagjöf til íbúa og annarra viðskiptavina. Nefndin ætlar einnig að leggja grunn að upplýsingapakka fyrir nýja íbúa í sveitarfélaginu, halda áfram að vekja athygli á kostum sveitarfélagsins með markvissum auglýsingaherferðum með nýju kynningarefni, stuðla að aukningu í viðburðahaldi og skoða innkomuna í Borgarbyggð. Þá stendur einnig til að láta útbúa atvinnumálastefnu og stefnumótun í stafrænni þróun.“\r\n\r\nÞá segir einnig að í fjárhagsáætlun fyrir menningarmál verði lögð áhersla á að fara í innviðaendurnýjun á innanstokksmunum í Safnahúsi Borgarfjarðar, auka viðburðarhald til að auka hlutverk safnsins í daglegu lífi fólks og standsetja fyrstu hæðina í húsinu til að koma upp nýrri sýningu. Einnig þurfi að fara í markvissa vinnu við gerð stefnumótunar fyrir öll söfnin í samræmi við skýrslu um framtíðarskipan Safnahúss.\r\n\r\nÍ lok fundar var tekið fyrir erindi slökkviliðsstjóra Borgarbyggðar vegna 100 ára afmælis slökkviliðsins á næsta ári til að minnast tímamótanna. Nefndin tók jákvætt í erindið og fól samskiptastjóra að boða slökkviliðsstjóra á næsta fund nefndarinnar til að ræða hvernig eigi að minnast þessara tímamóta á komandi ári.",
  "innerBlocks": []
}
Spennandi verkefni á næsta ári í Borgarbyggð - Skessuhorn